endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þá hef ég eitthvað misskilið þetta. Einhvern veginn stóð ég í þeirri trú, eftir að hafa lesið greinargerðina, að þetta ætti fyrst og fremst við þennan minnsta flokk, þegar kemur að smærri virkjunum, við skulum segja yfir 1 MW og upp í 5–10. Ég held að eflaust megi einfalda þetta eitthvað, en þetta eru svo ólík mannvirki að það þarf að fara gætilega í einföldun á því regluverki. Við erum nokkrir þingmenn að íhuga að leggja fram frumvarp þar sem er skylda til umhverfismats, t.d. á öllum virkjunum sem eru á milli 1 og 10 MW. En ég þakka fyrir þetta svar. Þá er þingsályktunartillagan sjálf orðuð hér eins og hv. þingmenn ætla sér en misskilningur minn að hér væri fyrst og fremst verið að vísa til hinna allra minnstu virkjana. Það er gott að það komi fram, fyrir mig alla vega.