151. löggjafarþing — 20. fundur,  13. nóv. 2020.

náttúruvernd.

276. mál
[13:17]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum laganna og skipta má efni þeirra í þrjá flokka. Í fyrsta lagi er um að ræða breytingar á ákvæðum sem fjalla um náttúruminjaskrá, málsmeðferð við gerð hennar og um friðlýsingu stakra svæða. Í öðru lagi er um að ræða breytingar á ákvæðum er tengjast annars vegar undanþágum frá ákvæðum friðlýsinga og hins vegar undanþágum frá banni við akstri utan vega. Þá er að lokum, í þriðja lagi, lagt til nýtt ákvæði um kortlagningu óbyggðra víðerna.

Nokkur reynsla er komin á framkvæmd friðlýsinga í samræmi við þá málsmeðferð sem lýst er í 36. gr. og 38.–40. gr. náttúruverndarlaga. Málsmeðferðin er tvenns konar, allt eftir því hvort verið er að vinna að friðlýsingu svæðis sem Alþingi hefur fjallað um í framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár eða náttúruverndaráætlun samkvæmt eldri lögum eða ef fjallað er um friðlýsingu sem ekki er á þessari framkvæmdaáætlun. Hægt er að friðlýsa svæði sem ekki er á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár eða náttúruverndaráætlun ef samþykki landeiganda og viðkomandi sveitarfélags liggur fyrir. Um slíkar stakar friðlýsingar gildir að kynna þarf sérstaklega áform um friðlýsinguna og er í lögunum vísað til sömu málsmeðferðar og gildir um tillögu að framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Það þýðir að stök friðlýsingaráform þarf að kynna í átta vikur hið minnsta. Þannig er samkvæmt núgildandi lögum ekki gerður greinarmunur á þeim tíma sem kynning áforma um stakar friðlýsingar svæða skuli taka og kynningar á tillögu að framkvæmdaáætlun í heild sinni. Hinn langi kynningarfrestur byggist því á því að hann á við um kynningu að tillögu að endurskoðaðri náttúruminjaskrá sem er miklu umfangsmeiri en einstaka friðlýsing sem ráðherra er heimilt að ákveða. Í ljósi reynslunnar er talið hæfilegt að kynningartími vegna einstakra friðlýsinga verði styttur í að lágmarki tvær vikur. Sé einstök friðlýsing umfangsmikil má auðvitað auglýsa hana í lengri tíma en það. Eftir sem áður verður kynningartími framkvæmdaáætlunar náttúruminjaskrár átta vikur.

Ég vil hins vegar taka fram að þó svo að þessi kynningartími sé styttur úr átta vikum í tvær þegar kemur að áformum um einstaka friðlýsingu munu drög að friðlýsingarskilmálum svæðisins, þegar þau liggja fyrir, auk þess fara í annað kynningarferli, sem í dag er þrír mánuðir en lagt er til að verði stytt í sex vikur. Með því að stytta þessa fresti er unnt að flýta ferli friðlýsinga frá því sem nú er. Sex vikna fresturinn yrði sambærilegur við til að mynda frest sem gefinn er til að gera athugasemdir við skipulagstillögur og frumatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum.

Önnur breyting varðandi áform um friðlýsingu er sú að í frumvarpinu er lagt til að þegar verið er að kynna slík áform þá þurfi ákveðinn friðlýsingarflokkur ekki að liggja fyrir. Að lágmarki þurfi að tilgreina markmið og tilgang fyrirhugaðrar friðlýsingar en tilgangur með kynningu á áformum er einmitt að kalla fram ábendingar um viðkomandi svæði og því gætu komið fram upplýsingar í kynningarferlinu sem mögulega kalla á annan friðlýsingarflokk en upphaflega var lagt upp með. Með þessari breytingu mun því mat á hvaða friðlýsingarflokkur verður fyrir valinu fara fram þegar unnið er að gerð friðlýsingarskilmála með aðkomu þeirra aðila sem lögin kveða á um.

Að lokum er lögð til breyting á því hvar tillaga að endurskoðaðri náttúruminjaskrá skuli auglýst. Í dag er kveðið á um að hún skuli auglýst í dagblaði sem gefið er út á landsvísu og í Lögbirtingablaðinu og jafnframt á heimasíðu ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessu verði breytt þannig að tillagan skuli auglýst í Lögbirtingablaði, á vefmiðlum og með öðrum hætti eftir því sem við á. Ég vil ítreka eftir sem áður að áfram er gert ráð fyrir að tillagan verði send sveitarstjórnum, náttúruverndarnefndum, náttúrustofum, öðrum opinberum aðilum eftir því sem við á, hagsmunasamtökum og öðrum aðilum sem eiga hagsmuna að gæta til umsagnar. Eingöngu er verið að leggja til að ábyrgð á málinu verði í meira samræmi við nútíma samskiptahætti.

Þá sný ég mér að næsta flokki breytinga sem lagðar eru fram í frumvarpinu, en um er að ræða breytingar á annars vegar 4. mgr. 31. gr., sem fjallar um undanþágur frá banni við akstri utan vega og hins vegar 1. mgr. 41. gr. sem fjallar um undanþágur frá ákvæðum friðlýsinga. Slíkar undanþágur eru samkvæmt gildandi lögum í dag á hendi ráðherra. Það fyrirkomulag gerir það að verkum að um endanlega ákvörðun í viðkomandi máli er að ræða sem ekki er hægt að fá endurskoðaða á stjórnsýslustigi. Slíkt er ekki í samræmi við ákvæði Árósasamningsins um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessar ákvarðanir verði hjá Umhverfisstofnun. Tengd þessum breytingum er 7. gr. frumvarpsins þar sem lagðar eru til breytingar á ákvæði laganna er fjallar um ágreining um framkvæmd laganna.

Að lokum er í frumvarpinu lagt til nýtt ákvæði um að ráðherra verði heimilt að setja reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna. Nú þegar liggja fyrir drög að greiningu víðerna á hálendinu og hefur Skipulagsstofnun borið ábyrgð á þeirri vinnu. Rétt þykir að kortleggja með sama hætti óbyggð víðerni annars staðar á landinu og að þannig verði til heildstætt yfirlit yfir óbyggð víðerni hérlendis. Ég vil taka fram að slík kortlagning hefur ekki í för með sér að svæði sé friðlýst sem óbyggt víðerni, en slík friðlýsing myndi ávallt fara fram á grundvelli þeirrar málsmeðferðar sem lögin kveða á um. Kortlagningin mun hins vegar að mínu mati auðvelda alla vinnu við skipulagslegar ákvarðanir sveitarstjórna, svo sem gerð og breytingu á skipulagsáætlunum þeirra og ákvarðanir um landnotkun. Þessu tengt er lagt til að fyrstu kortlagningu óbyggðra víðerna skuli ljúka fyrir 1. júní 2023.

Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.