búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum. Flutningsmaður auk mín er Inga Sæland. Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram lagafrumvarp sem kveði á um eftirfarandi:
1. Ríki og sveitarfélögum verði skylt að útvega öldruðum, sem hafa gengist undir færni- og heilsumat, dvalar- eða hjúkrunarrými eigi síðar en 60 dögum eftir að niðurstöður mats um að viðkomandi eigi rétt á slíku úrræði liggja fyrir.
2. Færni- og heilsumat skuli gefið út eigi síðar en 10 dögum eftir að umsókn um það berst.
3. Öldruðum einstaklingum, sem dvalist hafa lengur en 10 daga á sjúkrahúsi án sérstakrar meðferðar, verði útvegað dvalar- eða hjúkrunarrými.
4. Læknar geti ákveðið að einstaklingur sem bersýnilega þarf að fá vistun í hjúkrunarrými þurfi ekki að undirgangast færni- og heilsumat til þess að fá dvöl á viðeigandi stofnun.
5. Maki eða sambúðarmaki heimilismanns á stofnun fyrir aldraða skuli, án tillits til þess hvort hann hafi gengist undir færni- og heilsumat, eiga þess kost að dvelja á stofnun ásamt heimilismanni. Viðkomandi öðlist þá sjálfstæðan rétt sem heimilismaður á stofnun fyrir aldraða.
Ráðherra leggi fram frumvarp þessa efnis á haustþingi 2021.“
Þingsályktunartillaga þessi var áður lögð fram á 149. og 150. löggjafarþingi, 41. mál.
Fjöldi þeirra sem bíða eftir hjúkrunarrýmum jókst um 60% á landsvísu á milli janúar 2014 og janúar 2018. Á sama tíma fjölgaði þeim sem bíða þurftu lengur en 90 daga eftir hjúkrunarrými um 35%. Frá árinu 2014 til ársins 2018 lengdist meðalbiðtími eftir hjúkrunarrými úr 91 degi í 116 daga. Af þeim 186 einstaklingum sem fengu úthlutað hjúkrunarrými á þriðja ársfjórðungi ársins 2014 biðu 57 einstaklingar lengur en 90 daga. Á þriðja ársfjórðungi ársins 2018 biðu 77 einstaklingar af 175 lengur en 90 daga eftir því að fá hjúkrunarrými.
Í úttekt embættis landlæknis, sem kom út í júní 2020, eru birtar tölur um bið eftir varanlegri búsetu í hjúkrunarrými. Þar kemur fram að árið 2019 voru að meðaltali 220 einstaklingar á biðlista á höfuðborgarsvæðinu eftir hjúkrunarrými, ríflega 70% fleiri en árið 2015. Á Suðurnesjum voru árið 2019 að meðaltali 16 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrými eða 6,6 á hverja 1.000 aldraða íbúa í umdæminu. Árið 2015 var samsvarandi hlutfall hærra eða 21,3 á hverja 1.000 aldraða íbúa í umdæminu. Árið 2019 voru að meðaltali 29 á biðlista eftir almennu hjúkrunarrými á Vesturlandi, fleiri en árið á undan. Áfram hefur fjölgað á biðlista en á fyrsta ársfjórðungi 2020 var talan komin í 45 einstaklinga. Á Vestfjörðum voru að meðaltali 11 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrými árið 2019. Meðalfjöldi á biðlista eftir hjúkrunarrými á Norðurlandi jókst nokkuð frá 2014 til 2017 en hefur svo staðið í stað milli ára. Á árinu 2019 voru heldur færri á biðlista að meðaltali en undanfarin tvö ár. Í árslok 2019 voru 109 almenn hjúkrunarrými á Austurlandi sem er með því hæsta miðað við íbúafjölda. Frá árinu 2016 hefur fjöldi á biðlista þar verið svipaður, árið 2019 voru að meðaltali 17 á biðlista. Loks hefur meðalfjöldi á biðlistum haldist nokkuð svipaður á síðustu fimm árum á Suðurlandi, þar voru 20 einstaklingar að meðaltali á biðlista árið 2019.
Árið 2014 létust 114 einstaklingar á biðlista, 141 árið 2015, 178 árið 2016 og 183 árið 2017. Samhliða þessari fjölgun fækkaði almennum hjúkrunarrýmum um 6% og dvalarrýmum um í kringum 60% frá árinu 2007 til ársins 2017. Árið 2019 voru almenn hjúkrunarrými á hjúkrunar- og dvalarheimilum landsins 2.648 en dvalarrými 179. Árið 2017 voru almenn hjúkrunarrými 2.526 en dvalarrými 281. Árið 2007 voru hjúkrunarrými tæplega 2.700 en dvalarrými ríflega 700.
Sveitarfélögin sjá um húsnæði fyrir hjúkrunar- og dagvistunarúrræði aldraðra en ríkið úthlutar fjármagni með hverjum og einum þeirra. Með þessu eru sveitarfélögin háð úthlutunum hjúkrunar- og dvalarrýma frá ríkinu og þannig strandar málið á því að sveitarfélög fá oft ekki, þrátt fyrir ítrekaðar óskir, fjármagn til að fjölga dvalar- og hjúkrunarrýmum og reka með viðhlítandi hætti.
Það eykur þrýsting á stjórnvöld ef hámark biðtíma eftir úrræði er lögfest. Ef ekki er fylgt lagaramma um hámark biðtíma getur það myndað skaðabótaskyldu vegna þess tjóns sem bið kann að valda þeim sem eiga rétt á úrræðinu. Því er lagt til að hámark biðtíma eftir dvalar- eða hjúkrunarrými verði 60 dagar.
Það lengir verulega biðtíma eftir dvalar- eða hjúkrunarrými ef fólk þarf að bíða lengi eftir færni- og heilsumati. Tryggja þarf að bið eftir færni- og heilsumati verði sem styst svo að fólk geti hlotið viðeigandi úrræði sem fyrst. Það má gera með bættri mönnun og auknu fjármagni til verkefnisins. Því er lagt til að skylt verði að gefa út færni- og heilsumat eigi síðar en 10 dögum eftir að umsókn berst.
Ef enginn vafi leikur á því að einstaklingur þurfi dvalar- eða hjúkrunarrými þá eiga ekki að vera hömlur í kerfinu. Því er lagt til að öldruðum einstaklingum sem dvalið hafa lengur en 10 daga á sjúkrahúsi án sérstakrar meðferðar verði útvegað dvalar- eða hjúkrunarrými þó að færni- og heilsumat hafi ekki verið gert. Sú tilhögun dregur úr fráflæðisvanda spítalanna — sem er mjög ljótt orð og ætti að nota orðið „útskriftarvandi“. Að nota orðið fráflæðisvandi um eldri borgara þessa lands er ömurlegt. Útskriftarvandi er rétta orðið og þá er það útskriftarvandi kerfisins og ríkisstjórnar sem er við völd á hverjum tíma. Sú tilhögun dregur úr þessum vanda og stuðlar að því að fólk komist í rétt úrræði strax. Þá er einnig lagt til að læknar geti ákveðið að einstaklingar sem bersýnilega þurfa að fá vistun í hjúkrunarrými þurfi ekki að undirgangast færni- og heilsumat til að fá dvöl á viðeigandi stofnun. Í slíkum tilvikum er tilgangslaust að lengja ferlið sem einstaklingur þarf að ganga í gegnum til að öðlast rétt á viðeigandi úrræði.
Eldri borgarar sem dvelja á stofnun fyrir aldraða eru oft þvingaðir til sambúðarslita þar sem þeir eiga ekki kost á að vera samvistum við maka eða sambúðarmaka sinn. Það er mannréttindamál að tryggja að íbúar á öldrunarstofnunum geti verið áfram samvistum við maka sinn. Markmið tillögunnar er að gera fólki mögulegt að búa áfram með maka sínum sem hefur af heilsufarsástæðum þurft að flytjast á heimili sem krefst færni- og heilsumats til búsetu. Því yrði ekki lengur áskilið að heilbrigður eða heilbrigðari maki byggi annars staðar en hinn veikari. Þannig yrði komið í veg fyrir þvinguð sambúðarslit.
Virðulegur forseti. Það hefur komið í ljós að daggjöld duga ekki fyrir kostnaði við rekstur hjúkrunarheimila. Þess vegna er verið að hætta við rekstur þeirra á vegum sveitarfélaga og það á einnig að draga verulega úr þjónustu við heimilisfólk, sem eru veikir eldri borgarar. Þá fer fækkandi sérhæfðum geðhjúkrunarrýmum og endurhæfingarrýmum, sem er fáránlegt og okkur til háborinnar skammar. Hvernig verða síðustu ár veikra foreldra okkar, ömmu og afa okkar?
Síðan hefur komið ljótur blettur á málefni hjúkrunarheimila þar sem hefur átt sér stað nauðungarflutningur fatlaðs fólks, sem er fáránlegt. Það er fáránlegt að nauðungarflytja fatlað fólk á hjúkrunarrými án þess samþykkis.
Biðlistar eftir heilsumati til að komast á biðlista eftir hjúkrunarrými er fáránlegt og eru ekkert annað en að það er verið að plata þá sem bíða eftir þessari þjónustu sem þeir þurfa á að halda. Það er alveg með ólíkindum að við skulum nú þegar vera með tvískipt kerfi biðlista, biðlista fyrir eldri borgara eftir að komast í færnismat og biðlista til þess að komast á biðlista sem kemur þér inn á hjúkrunarheimili. Það er sorglegt til þess að hugsa að kerfið skuli vera farið að virka í þessa átt. Ég spyr mig: Hvað verður næst í þessu kerfi? Verður það biðlisti til að komast í færniskerfið, síðan biðlisti til að vera í bið í færniskerfinu og síðan biðlisti til að þess að komast inn á hjúkrunarrými? Þrískipt kerfi; biðlisti til að komast á biðlista til að komast á biðlista. Ef það er lausn þessarar ríkisstjórnar þá segi ég: Guð hjálpi okkur.
Við eigum að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að eldri borgarar okkar lands, sem þurfa að komast á hjúkrunarrými, komist þangað. Það er ekki á þá leggjandi og fjölskyldur þeirra eru að bugast vegna þess að þær hafa áhyggjur af því að veikir einstaklingar, foreldrar þeirra, afar eða ömmur, komist ekki í hjúkrunarrými. Fólk þarf að ganga frá Pontíusi til Heródesar í kerfinu í þeim tilgangi einum að reyna að hjálpa foreldrum sínum, öfum eða ömmum. Það er ömurlegt. Það er alveg með ólíkindum að við skulum hafa hlutina svona og séum búin að hafa þessa hluti svona svo árum skipti. Við verðum líka að átta okkur á því að ef við tökum ekki á þessu strax, núna strax, þá versnar þetta og versnar. Við vitum að á næstu árum fjölgar eldri borgurum og við verðum að finna lausnir til þess að þeir sem þurfa og vilja fara á hjúkrunarheimili komist í það.
Við þurfum líka að finna lausnir fyrir þá sem eru á stuttum biðlistum, hvernig þjónustu þeir fá, og helst af öllu að útrýma biðlistunum.
Ríkisstjórnin hefur allt frá kosningum boðað átak í fjölgun hjúkrunarheimila. Ráðist hefur verið í byggingu þeirra og einhver hafa verið tekin í notkun en þrátt fyrir það hafa biðlistar lengst og rekstrarerfiðleikarnir aukist.
Það er ekkert leyndarmál að á næstu árum verður þörf fyrir fleiri hjúkrunarrými. Okkur hefur verið það ljóst um áratugaskeið, enda er það ekkert leyndarmál að á síðustu öld fjölgaði Íslendingum töluvert á sama tíma og lífslíkur jukust. Ríkisstjórnir hafa haft allar nauðsynlegar forsendur til að koma í veg fyrir skort á hjúkrunarrýmum þegar stórir árgangar eftirstríðsáranna þurfa á hjúkrun að halda. Engu að síður hafa þær dregið lappirnar. Afleiðingin er sú að skortur á hjúkrunarrýmum er orðinn viðvarandi vandamál en ekki tímabundið ástand.
Á sama tíma er rekstur hjúkrunarheimila orðinn erfiður, eins og áður er sagt, og mörg sveitarfélög íhuga nú að segja sig frá rekstri hjúkrunarheimila vegna þess hve lítið ríkið hefur aukið framlög til reksturs þeirra. Á sama tíma og ríkið neitar að auka framlög til reksturs hjúkrunarheimila eru gerðar auknar kröfur til reksturs þeirra sem óneitanlega leiða til hærri rekstrarkostnaðar. Þá hefur hækkun lífaldurs þjóðarinnar það í för með sér að meðalaldur íbúa hjúkrunarheimila fer hækkandi og þar með einnig þjónustuþörfin.
Flokkur fólksins telur nauðsynlegt að grípa til aðgerða strax til að ráða bót á vandanum. Tillaga okkar er þannig úr garði gerð að ríkisstjórninni er falið að setja ramma utan um það hve lengi megi bíða þar til einstaklingar sem þess þurfa fái dvöl á hjúkrunarheimili. Slík lagaumgjörð myndi setja aukinn þrýsting á komandi ríkisstjórn til þess að standa við orð sín.