barnaverndarlög.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á barnaverndarlögum hvað varðar heimild til að beita viðurlögum þegar umgengni er tálmuð eða takmörkuð. Sambærilegt frumvarp var lagt fram á 146. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu þá. Síðan var það aftur lagt fram á 149. og 150. löggjafarþingi með þeim breytingum sem tilgreindar eru í greinargerðinni með frumvarpinu.
Ég ætla ekki að halda neitt sérstaklega langa ræðu um þetta mál. Farið hefur verið yfir það áður. En ég vil þó minna á að bæði í lögum og í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er lögð mikil áhersla á rétt barnsins til umgengni við báða foreldra og skyldur foreldranna í þeim efnum. En þrátt fyrir að löggjafinn hafi með skýrum hætti lagt mikla áherslu á þessi réttindi barnsins hafa ekki verið með skýrum hætti úrræði í lögum til að fylgja þessu eftir, þ.e. menn komast upp með að brjóta á þessum rétti barnsins án þess að þurfa að sæta einhvers konar ábyrgð eða viðurlögum vegna þess.
Einhvern veginn hefur það verið svo undarlegt í meðferð þessa máls áður á þinginu að þeir sem hafa kannski talað hæst um mikilvægi réttinda barna, haldið margar ræðurnar um réttindi barna, um ofbeldi gegn börnum, en svo þegar kemur að ofbeldi af þessu tagi, að svipta barn foreldri sínu, umgengni við foreldri sitt, sem er auðvitað með því alvarlegasta sem hægt er að gera barni, það getur haft alvarlegar afleiðingar, þá allt í einu kemur þögn í salinn, ótrúleg þögn. Þeir fáu sem hafa kannski eitthvað mótmælt þessu frumvarpi viðurkenna þó að þetta sé ákveðið ofbeldi, en þetta mál hefur meira og minna farið snúast um einhvers konar kynjaréttindamál eða kvenréttindamál eða ofbeldi gegn konum o.s.frv. Þetta snýst ekkert um það. Þetta snýst um ótvíræðan rétt barnsins og mikilvægi þess að það fái að umgangast báða foreldra.
Ég vil því skora á þingið að afgreiða þetta mál með skýrum hætti og að það komi hér til afgreiðslu. Ef það gerist ekki núna á þessu þingi þá mun ég halda áfram með þetta mál svo lengi sem ég verð á þingi.