Þjóðhagsstofnun.
Herra forseti. Flutningsmenn þessa frumvarps eru hv. þingmenn Samfylkingarinnar, allur þingflokkurinn. Frumvarpið er nú flutt í fjórða sinn og var síðast lagt fram á 150. löggjafarþingi. Fyrsti flutningsmaður málsins þá var sú sem hér stendur en Valgerður Bjarnadóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, var fyrsti flutningsmaður málsins á 145. löggjafarþingi þegar málið kom fyrst fram. Með frumvarpinu er lagt til að stofnuð verði Þjóðhagsstofnun til að fylgjast með árferði og afkomu þjóðarbúsins, vinna að hagrannsóknum og vera ríkisstjórn og Alþingi til ráðuneytis í efnahagsmálum. Í ljósi núverandi ástands í efnahagsmálum er brýnt fyrir Alþingi að hafa aðgengi að hlutlausri greiningu aðila sem tengjast þinginu til að meta aðgerðir í efnahagsmálum og samspil þeirra.
Við umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um málið á 146. löggjafarþingi bárust nefndinni tvær umsagnir vegna málsins. Í annarri umsögninni var lögð áhersla á mikilvægi þess að fulltrúar almennings sem og kjósendur hefðu aðgang að traustum upplýsingum um horfur í efnahagsmálum og mikil áhersla væri lögð á hagræn sjónarmið og sérþekkingu í opinberri stefnumótun og þyrfti að taka mið af sérþekkingu úr öðrum vísindagreinum. Einnig væri verkaskipting óljós samkvæmt frumvarpinu á milli stofnana og ráðuneyta að því er varðaði söfnun upplýsinga, skýrslugerð og framkvæmd spálíkana. Nokkur sérþekking væri til staðar hjá ráðuneytum og stofnunum sem ekki væri til staðar hjá Alþingi og mikilvægt væri að tryggja að bæði þingmenn og kjósendur hefðu aðgang að traustum upplýsingum um árangur og framkvæmd laga og framtíðarhorfur. Þá var einnig talið að sjálfstæði Þjóðhagsstofnunar væri ekki nægilega vel tryggt með frumvarpinu og færi betur á að forstjóri væri ráðinn með annarri leið sem tryggði betur sjálfstæði slíkrar stofnunar en að hann væri ráðinn af forsætisnefnd Alþingis. Lögð er til sú breyting frá fyrri framlagningu að forstjóri stofnunarinnar sé kosinn af Alþingi og er það til samræmis við lög um aðrar eftirlitsstofnanir þingsins og kjör umboðsmanns Alþingis og ríkisendurskoðanda. Þar sem um væri að ræða nýja eftirlitsstofnun þingsins er mikilvægt að trúnaður og traust ríki á milli Alþingis og forstjóra stofnunarinnar. Eðlilegt er því að þingið hafi beina aðkomu að kjöri hans en með þessu yrði það ekki einvörðungu á hendi forsætisnefndar heldur þingsins alls.
Í hinni umsögninni var því lýst að mikilvægt væri að fjölga þjóðhagslíkönum sem notast væri við, sér í lagi í tengslum við opinber fjármál og áhrif þeirra á efnahagsþróun. Einnig þyrfti að styrkja greiningargetu opinberra aðila á efnahagssviði á afleiðingum einstakra atburða og aðgerða. Bent var á að ýmsir möguleikar væru í boði í þeim efnum. Á árunum 1974–2002 var starfandi Þjóðhagsstofnun, sem heyrði undir forsætisráðherra og átti að fylgjast með árferði og afkomu þjóðarbúsins, vinna að hagrannsóknum og vera ríkisstjórn og Alþingi til ráðuneytis í efnahagsmálum. Ákvörðun þáverandi forsætisráðherra um að leggja niður Þjóðhagsstofnun hefur alla tíð verið mjög umdeild. Með þessu frumvarpi er lagt til að sú stofnun verði aftur sett á stofn árið 2021.
Alþingi samþykkti einróma 28. september árið 2010 þingsályktun um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þar eru talin upp 12 atriði sem þurfi að endurskoða eða undirbúa löggjöf um. 11. atriði þeirrar upptalningar hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Stofnuð verði sjálfstæð ríkisstofnun sem fylgist með þjóðhagsþróun og semji þjóðhagsspá.“
Í skýrslu þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis frá september 2010 kemur fram í kafla 2.1 að þingmannanefndin leggi til að slík stofnun starfi á vegum Alþingis og hafi það hlutverk að meta og gefa út spár fyrir efnahagslífið á sama hátt og Þjóðhagsstofnun gerði til 1. júlí 2002. Í fyrsta bindi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008 segir í 4. kafla um efnahagslegt umhverfi og innlenda efnahagsstjórn, kafla 4.8 sem nefnist Ályktanir rannsóknarnefndar Alþingis:
„Nauðsynlegt er að auka samvinnu ríkisfjármála og Seðlabankans við hagstjórnaraðgerðir þannig að annarri stefnunni sé ekki beitt markvisst gegn hinni líkt og gert var undanfarin ár þegar ríkisfjármálin miðuðu stöðugt að því að auka á ójafnvægið og ofþensluna og láta Seðlabankanum einum eftir að glíma við afleiðingarnar. Til þess að skapa hlutlausan grundvöll fyrir samhæfingu efnahagsstefnunnar mætti fela sjálfstæðri ríkisstofnun það hlutverk að spá fyrir um efnahagshorfurnar og meta ástand efnahagsmála og líklega þróun að gefnum forsendum um mismunandi efnahagsstefnu. Mikilvægt er í slíku samstarfi að virða sjálfstæði Seðlabankans til ákvarðanatöku og beitingar stýritækja sinna en nokkuð hefur skort á það að ráðherrar hafi tekið nægt tillit til stefnu Seðlabankans.“
Það er löngu tímabært að Alþingi bregðist við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og skýrslu þingmannanefndarinnar sem fjallaði um hana og endurreisi Þjóðhagsstofnun. Enda, herra forseti, var sú tillaga samþykkt með öllum greiddum atkvæðum í þessum sal árið 2010. Þegar Þjóðhagsstofnun var lögð niður voru ákveðin verkefni hennar, m.a. færsla þjóðhagsreikninga og gerð þjóðhagsspár og þjóðhagsáætlana, færð yfir til Hagstofu Íslands. Verði þetta frumvarp að lögum þarf að breyta lögum um Hagstofu Íslands til samræmis svo verkefni þessara tveggja stofnana skarist ekki. Með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, var sett á stofn fjármálaráð. Í athugasemdum með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Mikilvægt er að tryggja að fram fari eins hlutlægt mat og kostur er á forsendum stefnumörkunar í opinberum fjármálum. Því er lögð til sú breyting að sjálfstætt fjármálaráð leggi mat á það hvort fjármálastefna og fjármálaáætlun séu í samræmi við annars vegar þau grunngildi sem talin eru upp í 2. mgr. 6. gr. frumvarpsins og hins vegar fjármálareglu skv. 7. gr. frumvarpsins. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að fjármálaráð greini hvort fjármálaáætlun og framkvæmd hennar sé samkvæmt fjármálastefnu. Til að tryggja gagnsæi og aðgang almennings að niðurstöðum ráðsins skal það birta álitsgerðir sínar opinberlega.
Virk stjórnun opinberra fjármála er háð því hversu aðgengilegar upplýsingar um markmið, forsendur, framkvæmd og áhrif fjármálastefnu eru almennt. Til að stjórnun opinberra fjármála sé árangursrík þarf samstillingu og samkvæmni þessara þátta. Hlutverk fjármálaráðs er að greina það samspil og meta hvort það sé rökrétt og uppfylli þær kröfur sem grunngildin og fjármálareglan fela í sér og fjármálastefnan hvílir á. Fjármálaráð er fyrst og fremst faglegt ráð sem beitir þeirri aðferðafræði sem best er talin á sviði hagvísinda við greiningu og rökstuðning í álitsgerð sinni. Ráðið skal stuðla að gagnsæi í umræðu um þróun opinberra fjármála. Óháð álitsgerð fjármálaráðs er grundvallaratriði í þessu samhengi.“
Fjármálaráð er þriggja manna ráð. Til að það geti sinnt hlutverki sínu er nauðsynlegt að það fái upplýsingar og greiningar frá stofnun sem er óháð stjórnvöldum. Með þessu frumvarpi er lagt til að Þjóðhagsstofnun annist upplýsingaöflun og skýrslugerð fyrir fjármálaráð. Þannig er hlutlægni þess betur tryggð en ef stjórnvöld sjá um það, eins og gert er ráð fyrir samkvæmt 13. gr. laga um opinber fjármál.
Í athugasemdum við frumvarpið um opinber fjármál segir, með leyfi forseta:
„Til þess að vinna fjármálaráðs verði skilvirk innan setts tímafrests er nauðsynlegt að ráðið hafi greiðan aðgang að gögnum hjá Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem varða forsendur þeirra áætlana sem ráðinu er ætlað að leggja mat á.“
Ljóst er að fjármála- og efnahagsráðuneytið lýtur pólitísku valdi og er því ekki óvilhallt ráðandi stjórnvöldum á hverjum tíma. Með því að setja á stofn sjálfstæða stofnun sem heyrði undir Alþingi til að fjalla um efnahagsmál væri tekinn af allur vafi um pólitísk áhrif á þær forsendur sem fjármálaráð byggir vinnu sína á.
Það tíðkast að hafa fjármálaráð í löndunum í kringum okkur en þau þjóna mismunandi hlutverki. Í athugasemdum við frumvarp um opinber fjármál kemur eftirfarandi fram, með leyfi forseta:
„Ráðin eru mjög mismunandi milli þjóðríkja, sums staðar gera þau kostnaðarmat á stefnum stjórnmálaflokka og lagafrumvörpum, en annars staðar, svo sem í Svíþjóð, er hlutverk þeirra takmarkað við álitsgjöf á forsendum fjármálaáætlunar og fjárlagafrumvarps.“
Það gæti því verið hlutverk Þjóðhagsstofnunar að gera kostnaðarmat á stefnum stjórnmálaflokka, enda eitt af hlutverkum hennar samkvæmt frumvarpi þessu, að láta þingmönnum í té upplýsingar um efnahagsmál og það gæti átt við um kostnað af stefnu þeirra eða frumvörpum sem þeir leggja fram.
Samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál er starfrækt á grundvelli samstarfssáttmála á milli ríkis og sveitarfélaga. Nefndinni er falið að afla gagna um stöðu efnahagsmála og þróun fjármála ríkis og sveitarfélaga og skila árlegri greinargerð um efnahagsmál, þróun fjármála ríkis og sveitarfélaga, kjaramál og fleira til undirbúnings samráðsfundum með ráðherra og ráðherra sveitarstjórnarmála. Þá skal nefndin, ef þess er óskað, veita umsögn um tillögur til breytinga á fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga og/eða tekjustofnum sveitarfélaga. Eðlilegt er að þetta starf færist til sjálfstæðrar stofnunar sem fjallar um efnahagsmál.
Vissulega er umhverfið breytt frá því að Þjóðhagsstofnun starfaði. Samtök aðila vinnumarkaðarins, hvort heldur er launafólks eða atvinnurekenda, annast greiningar á efnahagsmálum en einnig eru öflugar greiningardeildir innan bankanna og aðrar stofnanir, svo sem Viðskiptaráð, sem láta sig varða greiningu á efnahagshorfum. Allt eru þetta hagsmunasamtök af einhverju tagi og óábyrgt að láta sem ekki komi til greina að greiningarnar geti verið litaðar af hagsmunum þessara fyrirtækja, stofnana eða samtaka. Þess vegna er brýnt að í landinu sé stofnun sem treysta má með nokkurri vissu að dragi ekki taum ákveðinna hagsmunaafla í þjóðfélaginu heldur hafi þjóðarhagsmuni að leiðarljósi.
Herra forseti. Þetta var úr greinargerð með frumvarpinu en mig langar í lokin að vitna í grein sem Gylfi Zoëga skrifaði í Vísbendingu á dögunum og fjallaði einmitt um nauðsyn þess að setja á slíka stofnun sem Þjóðhagsstofnun er. Gylfi segir, með leyfi forseta:
„Flestar ákvarðanir stjórnvalda hafa hagfræðilegar afleiðingar sem ekki eru alltaf augljósar. Efnahagsstærðir og túlkun þeirra skiptir máli. Þær skipta máli fyrir ákvarðanir stjórnvalda, opinbera umræðu og lýðræði. Það er mikilvægt að lagt sé hlutlaust mat á ákvarðanir. Ótal dæmi mætti nefna. Hvernig er tekjuskipting hér á landi í samanburði við nágrannalöndin? Hvernig hefur tekjuskiptingin þróast síðustu árin? Er skipting eigna ójafnari en skipting tekna? Hver eru áhrif skattkerfis á dreifingu tekna og eigna? Hver eru áhrif skatta- og bótakerfis á vinnumarkaðsþátttöku? Á að hleypa fleiri ferðamönnum inn í landið á tíma farsóttar? Hvernig hafa eldri borgarar það hér á landi í samanburði við nágrannaríkin? Ef skattur er lagður á vöru, hver greiðir skattinn, kaupandi eða seljandi? Hver eru áhrif breytinga á sköttum og ríkisútgjöldum á landsframleiðslu og atvinnu?
Síðustu tvo áratugina hefur enginn opinber, óháður aðili reynt að svara spurningum sem þessum. Ákvarðanir Alþingis og ríkisstjórnar hafa að mestu verið teknar í hagfræðilegu tómarúmi. Seðlabankinn er sjálfstæður og óháður, gerir sínar vönduðu greiningar sem eru grundvöllur ákvarðana um peningastefnu en þjónar ekki Alþingi og ríkisstjórn.
Þetta hagfræðilega tómarúm hafa hagsmunaaðilar fyllt. Afleiðingarnar hafa stundum verið slæmar. Engin leið er samt að vita hvað hefði gerst ef slíkur hlutlaus aðili hefði verið til. Kannski hefði hann sofið á verðinum, verið stjórnað af einstaklingi með óþægileg pólitísk tengsl o.s.frv. en kannski hefði slíkri stofnun heppnast að fylla upp í tómarúmið með hlutlausri greiningu og ráðgjöf.
Árið 2002 var Þjóðhagsstofnun lögð niður en hún var stofnuð árið 1974 og tók þá við verkefnum Framkvæmdastofnunar ríkisins. Stofnunin heyrði undir forsætisráðherra og átti að fylgjast með afkomu þjóðarbúsins, vera ríkisstjórn og Alþingi til aðstoðar í efnahagsmálum, gera rannsóknir á sviði efnahagsmála, gera þjóðhagsspár o.s.frv. Því fjármagni sem áður rann til Þjóðhagsstofnunar var skipt á milli Hagstofunnar, hagdeildar ASÍ og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Sú síðastnefnda fékk árlega fjárveitingu í nokkur ár sem þurfti að sækja um ár hvert og féll síðan niður árið 2008. Sá var munurinn á Þjóðhagsstofnun og Hagstofunni að síðarnefnda stofnunin safnar gögnum og tekur saman hagtölur en er ekki ætlað að túlka þær. Enginn þessara aðila gat gegnt hlutverki Þjóðhagsstofnunar þegar kom að hlutlausri greiningu og því að vera Alþingi til aðstoðar.
Í grein sem Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur á Þjóðhagsstofnun, skrifaði í Morgunblaðið árið 2002 sagði að eftir að stofnunin hefði verið lögð niður yrði ekki lengur til sjálfstæð stofnun sem fjallaði um efnahagsmál.“
Herra forseti. Ég hef lokið tilvitnun minni í grein dr. Gylfa Zoëga í Vísbendingu en ég hvet alþingismenn til að lesa hana. Hún er fróðleg og sýnir hvers vegna nauðsynlegt er að við gerum eins og lagt er til með þessu frumvarpi og setjum á laggirnar Þjóðhagsstofnun sem heyrir undir Alþingi. Það hlýtur öllum alþingismönnum og landsmönnum að vera ljóst hversu mikill fengur væri því nú um stundir í þessari dýpstu kreppu sem við erum í í 100 ár að hafa slíka stofnun til að greina efnahagsáhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar og samspil aðgerða og áhrif á einstaka hópa og almenning. Það er ekki til staðar, herra forseti, en hefði verið til staðar ef frumvarpið hefði verið samþykkt sem lagt var hér fram á 145. löggjafarþingi þar sem fyrsti flutningsmaður var þáverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Valgerður Bjarnadóttir.
Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frumvarpinu vísað til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.