störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í dag langar mig að beina athyglinni að málefnum barna og ungmenna á Covid-tímum. Það er mikilvægt að gefa því gaum hvernig þau vinna úr gjörbreyttum og óvæntum aðstæðum og leita leiða til að draga úr áhrifum og afleiðingum af skertu frelsi og jafnvel einangrun. Vanlíðan þeirra og einmanaleiki vex, segir fagfólk sem vinnur með börnum og unglingum. Á þessu sviði vinna skólarnir gott og vandað starf við erfiðar aðstæður á meðan skipulagt tómstunda- og íþróttastarf hefur verið bannað eða í skötulíki. Þegar svona er í pottinn búið finna aðstandendur barna og unglinga vel hvað virk þátttaka í íþróttastarfi skiptir miklu máli fyrir velferð þeirra og líðan, hversu uppbyggjandi íþróttastarf er, góð forvörn og mikilvæg þjálfun í félagslegri færni. Íþróttastarf og hreyfing hefur mikið að segja fyrir heilsuna og jafnvel enn frekar á tímum sem þessum.
Einn hluti af því sem sjaldan er komið inn á er aðgangur að íþróttahúsum um landið allt, en þau eru alltaf mjög ásetin. Aðstaða fyrir íþróttastarf innan húss er þó mjög mismunandi. Á Suðvesturhorninu hafa sveitarfélög af myndarskap komið upp nokkrum fjölnota húsum og á örfáum stöðum þess utan, oft nefnd knattspyrnuhús, en nýtast auðvitað miklu meira en bara til sparkíþrótta. Það er hagsmunamál fyrir þéttbýlisstaði og minni sveitarfélög úti um landið að hafa aðgang að slíkum húsum. Alhliða íþrótta- og tómstundaiðja fyrir börn og ungmenni er oft einn þeirra þátta sem skiptir máli þegar fjölskyldur taka ákvörðun um búsetu. Að þessu þurfa stjórnvöld að huga þegar rætt er um markmiðin um jöfn búsetuskilyrði í landinu, að styðja við bakið á sveitarfélögum til að koma upp góðri íþróttaaðstöðu um land allt til líkamlegrar og andlegrar heilsubótar fyrir alla aldurshópa.