vernd barna gegn ofbeldi í skólastarfi.
Forseti. Mig langar að ræða við mennta- og menningarmálaráðherra um varnir barna gegn ofbeldi í skólastarfi, þar með talið einelti. Mig langar að byrja á því að þakka mennta- og menningarmálaráðherra fyrir að hafa stigið strax fram með fordæmi. Hún talar um að hún vilji gera þetta núna, fara af stað með fleiri verkefni. Á kosningaári hugsar maður oft: Já, það er nú bara þannig að það er einhvern veginn verið að reyna að spila einhverja pólitík. En nei, mennta- og menningarmálaráðherra hefur stigið skref á þessu kjörtímabili, bæði með því að stofna eineltisráð undir Mennta- og menningarmálastofnun til að auka upplýsingagjöf til skólasamfélagsins og til foreldra og til barna sem lenda í einelti, og líka með lögum um samskiptaráðgjafa í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Ég treysti því mennta- og menningarmálaráðherra í þessum málaflokki. Ég treysti henni til þess að vilja gera virkilega vel þegar kemur að því að vernda börn gegn ofbeldi og einelti í skólastarfi.
Mig langar að spyrja almennt lausnamiðaðra spurninga og þær eru þrjár: Hvaða úrræði eru í boði til að tryggja að börn hljóti þá vernd gegn ofbeldi í skólastarfi sem þau eiga rétt á samkvæmt lögum? Hvaða úrræði hafa virkað best? Ég spyr þessara spurninga vegna þess að ég hef lengi látið mig þessi mál varða og hef verið að aðstoða foreldra í því að skilja hvernig kerfið virkar. Hvernig er ábyrgðarkeðjan? Hvernig geta foreldrar barna sem lenda í einelti fengið lausn í þeim málum, fengið eineltið stöðvað? Og það er bara mismunandi hvernig þetta er. Móðir drengs, sem lenti í einelti í skóla í borginni, benti á þetta, það komst í sjónvarpsfréttirnar og málið var leyst af skólayfirvöldum. Það var stigið inn í og óskað eftir hjálp. Spurt var um hvað myndi virka og málið var leyst. Svo er ég að aðstoða aðra fjölskyldu núna þar sem málið er komið á það stig að leita þurfti alla leið inn í eineltisráð af því að skólayfirvöld voru ekki tilbúin að stíga inn. Þarna erum við að tala um barn sem orðið hefur fyrir líkamlegu ofbeldi aftur og aftur í tvö ár, um dreng, sem er sjö ára í dag, sem verður fyrir líkamlegu ofbeldi sem skólayfirvöld viðurkenna, en það er ekkert gert í því, það er ekki stöðvað.
Fyrsta spurningin er þessi: Hvað hefur virkað? Og svo: Hvaða vernd gegn ofbeldi í skólastarfi eiga börn rétt á? Ef réttindavernd þeirra er framfylgt, eins og lögin segja, og lögin eru góð, framfylgdin er það sem virðist vanta upp á, hvað getur langur tími liðið frá því að ofbeldi gegn barni í skólastarfi uppgötvast þar til tekst að stöðva það? Eitt vil ég fá frá ráðherra: Hvaða skref hyggst ráðherra stíga næst til þess að uppfylla það sem á vantar, sem er þessi virka fræðsla og innkoma þegar skólayfirvöld vita ekki hvað þau eiga að gera, þegar foreldrar vita ekki hvað þau eiga að gera, þegar börn vita ekki hvað þau eiga að gera?