vernd barna gegn ofbeldi í skólastarfi.
Forseti. Ég þakka hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra kærlega fyrir svörin og það frumkvæði sem hún hefur sýnt í þessum málaflokki, og næstu skref. Ég held að þetta sé nákvæmlega atriðið sem vantar. Það sem við heyrum frá UNICEF, sem á að fylgjast með og aðstoða við að það sé raunverulega uppfyllt sem segir í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna, sem eru lög á Íslandi, er að það vantar eftirfylgnina, það vantar það sem hæstv. menntamálaráðherra er að tala um. Það vantar nákvæmlega það að tryggt sé að því sé raunverulega framfylgt sem er í lögum. Ég er búinn að fara í gegnum öll lög um réttindi barna, þau eru rosalega flott á Íslandi. Ég sé að mennta- og menningarmálaráðherra er með puttann á púlsinum. Það vantar fræðsluna, og ekki bara til foreldra heldur líka til skólayfirvalda.
Á opnum fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fór umboðsmaður Alþingis yfir það að hann væri að taka sér leyfi til að taka saman fræðsluefni fyrir stjórnsýsluna í landinu, hvernig framfylgja eigi stjórnsýslulögum. Hans hlutverk er að tryggja réttaröryggi borgaranna gagnvart stjórnsýslunni. Hann segir: Það eru allir af vilja gerðir en það vantar fræðsluna. Við þurfum að nálgast málið þannig, eins og menntamálaráðherra segir, að til staðar sé sérfræðingur sem geti stigið strax inn og aðstoðað. Forvarnir þurfa að vera til staðar, sem er heildstæða fræðslan, að fræða skólayfirvöld, að fræða foreldra, að fræða börnin um hvernig hlutirnir eigi að vera, og svo þarf sérfræðingur að geta stigið inn og aðstoðað ef skólayfirvöld segja: Við erum ekki alveg viss á þessu, geturðu komið og aðstoðað? Ef foreldrar segja: Hvað á ég að gera? Getur þú komið og aðstoðað? Þessi aðili þarf að vera til staðar til að aðstoða eftir fyrirmynd þeirra laga sem ráðherra fékk samþykkt. (Forseti hringir.) Ég er eiginlega að tala um snemmtæka íhlutun, ef gripið er fyrr inn í svona mál verður það miklu árangursríkara og miklu ódýrara. Það græða allir á því, það er forsendan.