151. löggjafarþing — 22. fundur,  18. nóv. 2020.

loftslagsstefna opinberra aðila.

61. mál
[17:48]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa góðu fyrirspurn og það er bæði gaman og gott að eiga umræðu um þennan þátt loftslagsmálanna því að það skiptir gríðarlega miklu máli að opinberar stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins, jafnt sem sveitarfélög, sýni gott fordæmi í loftslagsmálum.

Umhverfisstofnun hefur lögum samkvæmt eftirlit með ríkisstofnunum, fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins og sveitarfélögum um að þau setji sér loftslagsstefnu og stofnunin hefur birt leiðbeiningar um hvernig það skuli gert á heimasíðu sinni. Síðastliðið sumar setti Umhverfisstofnun á laggirnar rýnihóp sem samanstóð af sex ríkisstofnunum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins með það að markmiði að aðstoða aðila við verkefnið og fá endurgjöf á leiðbeiningarnar. Allir þessir aðilar hafa nú sett sér loftslagsstefnu eða eru mjög langt á veg komnir. Einhverjir fleiri eru komnar á lokametrana en nákvæmur fjöldi liggur ekki fyrir.

Umhverfisstofnun hefur hvatt ríkisaðila til að hefjast strax handa við að móta sér loftslagsstefnu og setja sér markmið og aðgerðaáætlun til að fylgja stefnunni eftir. Tekin hefur verið ákvörðun um að hver stofnun samþykki og innleiði stefnu sína eigi síðar en í árslok 2021 og upplýsingar um þær stofnanir verði birtar á vefnum. Unnið er að uppsetningu slíks vefsvæðis.

Hvernig er verið að ýta á eftir þessum málum? Ég vil byrja á því að minna á það að loftslagsstefna Stjórnarráðsins var samþykkt í ríkisstjórn 9. apríl 2019, en með henni setti Stjórnarráðið sér það markmið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, ná kolefnishlutleysi og prófa nýjar leiðir í rekstri sem minnka kolefnisspor. Forsætisráðuneytinu var upphaflega falin framfylgd stefnunnar innan Stjórnarráðsins en ábyrgð á framfylgdinni hefur nú verið færð til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Hér eru gefin kannski ákveðin skilaboð um það hvernig hægt sé að nálgast svona stefnumótun.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur farið þess formlega á leit við öll ráðuneyti að þau minni stofnanir á skyldu þeirra til að setja sér loftslagsstefnu og hvetji þær til að innleiða Græn skref í ríkisrekstri. Það sama verður gert í fjárveitingarbréfum til stofnana ríkisins, þar sem farið er yfir áherslur í ríkisrekstri á árinu 2021. Samkvæmt aðgerðaáætlun loftslagsstefnu Stjórnarráðsins eiga allir ríkisaðilar að hafa lokið innleiðingu grænu skrefanna fyrir 1. júní 2021. Unnið hefur verið að því að sameina skylduna um gerð loftslagsstefnu við grænu skrefin svo að þeir aðilar sem innleiða verkefnið séu á sama tíma að vinna að gerð loftslagsstefnu. Þarna eru mikil samlegðaráhrif.

Hvað sveitarfélögin varðar þá hlaut Samband íslenskra sveitarfélaga styrk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu á grundvelli aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum síðastliðið sumar í því skyni að þróa verkfærakistu fyrir sveitarfélögin til að auðvelda þeim vinnuna við gerð loftslagsstefnu. Verkfærakistan er heimasíða sem mun innihalda leiðbeiningar um gerð loftslagsstefnu, aðgerðabanka sem sveitarfélög geta sótt innblástur í, losunarreikni og annað fræðsluefni um loftslagsmál. Áætlað er að verkefninu ljúki í maí 2021. Umhverfisstofnun vinnur náið með Sambandinu að verkefninu og á sæti í stýrihóp þess.

Aðeins að þeim spurningum hvort til álita komi að beina til stofnana ríkisins að gefa fólki aukinn kost á fjarvinnu. Þá vil ég segja að með aukinni tækni, uppbyggingu fjarfundabúnaðar og þjálfun og kennslu á slíkan búnað þá aukast auðvitað tækifærin til að auka hagkvæmni, skilvirkni og gæði í opinberum rekstri. Ég tel líka að aukin stafræn þróun muni skapa tækifæri til sveigjanlegri staðsetningu starfa og verkefna. Má nefna að Microsoft-samningur ríkisins auðveldaði t.d. fjarvinnu starfsmanna og öll samskipti í samkomutakmörkunum sem var lykilatriði í því að viðhalda þjónustu og starfsemi hins opinbera. Kjara- og mannauðssýsla ríkisins vinnur nú að leiðbeiningum til ríkisstofnana um fjarvinnu starfsmanna, sem munu veita skýrari leiðsögn og forsendur fyrir fjarvinnu og þeim sveigjanleika sem henni getur fylgt en ljóst er að loftslagsstefnan og umbætur í starfsemi hins opinbera fara mjög vel saman.

Ég vil nefna líka að loftslagsstefna Stjórnarráðsins miðar að því að draga úr losun og sýnir og snýr það m.a. að fækkun flugferða, sem hv. þingmaður kom hér inn á, með áherslu á fjarfundi og breytt vinnulag. Það eru tvær aðgerðir í gangi til að ná því markmiði. Annars vegar að koma upp góðum fjarfundabúnaði og tryggja að starfsmenn fái nauðsynlega kennslu og þjálfun í notkun hans og hins vegar að ráðuneytin setji markmið um aukið hlutfall fjarfunda m.a. með breyttu verklagi um ferðáætlanir.

Loftslagsstefnan er ekki með sérstaka aðgerð varðandi fjarvinnu starfsfólks en viðverustefna Stjórnarráðsins skapar aftur á móti sveigjanleika til að starfsfólk geti unnið verkefni sín að heiman. Ég sé hins vegar tækifæri í því að uppfæra loftslagsstefnuna þannig að hún liðki frekar fyrir fjarvinnu starfsfólks. Þetta á ekki að vera mjög flókið og væri sennilega hægt að koma m.a. inn í samgöngusamninga. Þannig að ég tek undir með hv. þingmanni að hér eru mikil tækifæri (Forseti hringir.) sem ég held að við getum gert enn þá betur en við höfum verið að gera.