151. löggjafarþing — 22. fundur,  18. nóv. 2020.

lán Íbúðalánasjóðs sem bera uppgreiðslugjald.

196. mál
[18:20]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Þorsteinn B Sæmundsson) (M):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Ég er ekkert sérlega ánægður með það en auðvitað skil ég það sem ráðherra var að fara yfir, að þetta hefði á sínum tíma verið hagstætt og allt það. Það er alveg prýðilega gerð grein fyrir því af hálfu ráðherra að menn gerðu þarna mistök með því að bjóða þessi lán með uppgreiðslugjaldi.

Nú lít ég þannig á að eitt af hlutverkum stjórnmálamanna sé að leiðrétta mistök sem gerð hafa verið, ég tala nú ekki um þegar þau leggjast með þessum þunga á afmarkaðan hóp fólks sem í góðri trú tók lánin á sínum tíma. Þarna á undan voru lánaflokkar hjá Íbúðalánasjóði án uppgreiðslugjalds með föstum 5% vöxtum. Í ljósi sögunnar, þegar menn geta horft til baka, eru það náttúrlega líka algjörir fantavextir.

Ég hafði auðvitað gert mér grein fyrir því fyrir fram að það myndi kosta ríkissjóð ærið fé að leiðrétta þetta. Málið er hins vegar það að við erum núna í stórhættu með að fólk kunni að missa eignir sínar aftur eins og gerðist í kjölfar hrunsins. Það er byrjað að vinda ofan af því hverjir það voru sem högnuðust á því að fólk missti íbúðir sínar eða húseignir eftir hrun. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda að við ætlum að endurtaka þann leik, herra forseti, að fólk flæmist úr eignum sínum, m.a. eignum sem eru eins og þessar þar sem fólk er nánast múrað inni, til þess að einhverjir aðrir geti komið og hirt brauðmolana og hagnast á ógæfu þeirra sem missa fasteignir sínar. Þess vegna biðla ég til ráðherra að hann taki það til efnislegrar athugunar og virkilega djúprar skoðunar að skilmálabreyta þessum lánum þó að það muni kosta ríkissjóð 8 milljarða.