aðgerðir gegn spillingu.
Forseti. Spilling er rándýr. Spilling hyglar fáum á kostnað allra annarra. Spilling er falinn skattur sem kostar meira en virðisaukaskattur. En á meðan virðisaukaskattur er nýttur til að byggja upp innviði landsins þá er spilling notuð til að byggja valdablokkir. Þess vegna er Ísland aðili að GRECO, samtökum gegn spillingu. Þess vegna er forsætisráðherra búin að innleiða eða byrjuð að innleiða megnið af þeim spillingarvörnum sem GRECO lagði til fyrir tveimur árum: [Þingmaður sýnir blað.] Grænt er búið. Gult er farið af stað. Rautt er ekki byrjað.
Dómsmálaráðherra fékk líka svona lista af spillingavörnum fyrir tveimur árum. Hennar listi sneri að löggæslumálum. Og í fréttatilkynningu GRECO hvað löggæslu varðar segir: Ísland verður að takmarka pólitíska spillingu, pólitísk afskipti. Og þetta er listi dómsmálaráðherra: Rautt er ekki farið af stað. Gult er rétt hafið.
Spilling er mjög skiljanleg vegna þess að valdafólk getur notað almannavaldið til að byggja sínar valdablokkir. Þannig virkar það. En það er á kostnað allra annarra. Spilling er því mjög óæskileg. Hún er falinn skattur. Hún gerir okkur fátækari. Hún grefur undan réttarríkinu. Hún gerir okkur óöruggari. Hún verðlaunar hlýðni í stað hæfileika. Hún gerir okkur lélegri. Það kostar ráðherra ekkert að nota almannavaldið til að byggja eigin valdablokkir fyrr en það kostar traust kjósenda. (Forseti hringir.) Ég treysti því ekki að ráðherra vilji vinna að takmörkun spillingar innan löggæslunnar með svona rauðan lista.
Ég spyrja ráðherra: Hvers vegna er hennar listi svona rauður?