151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

aðgerðir gegn spillingu.

[10:37]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður getur alveg rétt fram hér einhverja lista sem hann hefur litað sérstaklega en væri nær að vísa í orð sérfræðings GRECO og einn höfunda þessarar skýrslu. Hann segir, með leyfi forseta:

„Það má segja að þetta sé allt í vinnslu. Það er ekki búið að innleiða tillögurnar en við tökum til greina að dómsmálaráðherra hóf nýverið mjög yfirgripsmikla endurskipulagningu á lögreglunni og öðrum embættum löggæslu. Það er einnig í gangi endurskoðun. Mér skilst að okkar tillögur sem miða að því að tryggja að engin pólitísk afskipti séu höfð af löggæslu verði innleiddar í gegnum þessi tvö ferli.“

Þetta segir sérfræðingurinn sem skrifaði þá skýrslu sem hv. þingmaður vísar í. Og hann heldur áfram og segist vera vongóður þegar hann gefur út næstu skýrslu, enda sé þetta stöðutaka. Við höfum fleiri mánuði til að klára eins og lagt var upp með í upphafi og ríki hafa til að klára eftirfylgni þessarar skýrslu. Hann bindur miklar vonir við og telur mjög líklegt að þetta verði komið að 18 mánuðum liðnum og búið verði að innleiða þessar athugasemdir. Hann segist líka ánægður að sjá þetta ferli og hann bætir auðvitað við að það sé ekki hægt að fara í beinan samanburð við önnur lönd.

En hvað er búið að gera og hvað er verið að benda á í þessum athugasemdum sem við erum að reyna að koma til móts við? Við vinnum hörðum höndum að því að skoða hvað það er í kerfinu okkar sem við getum gert betur til að koma til móts við þær athugasemdir sem þarna koma fram. Það er ekki síst innra samstarf og að lögreglan komi fram sem ein heild í meira mæli en verið hefur og ég veit ekki betur en ég hafi komið á fót lögregluráði. Við erum að lögfesta það með frumvarpi til laga sem var að klárast í samráðsgátt og er að fara fyrir ríkisstjórn og fyrir þingið fyrir áramót, um að lögfesta lögregluráð sem verði samráðs- og samhæfingarvettvangur allrar lögreglu í landinu með héraðssaksóknara og undir forystu ríkislögreglustjóra. Síðan er að treysta forystuhlutverk ríkislögreglustjóra sem einmitt er bent á að þurfi að gera í athugasemdum GRECO.