aðgerðir gegn spillingu.
Forseti. Þá er bara vonandi að það gerist, en það eru 18 mánuðir fram yfir næstu kosningar, og það er möguleiki. Ég vil geta treyst dómsmálaráðherra í þessu máli, forseti, ég vil að þetta sé lagað. Það er dýrt og gerir okkur fátækari, gerir okkur lélegri og gerir okkur óöruggari að hafa spillingu. Þegar okkur er bent á svona hluti og maður sér hvernig listinn er — og þetta er ekkert samanburður milli landa, þetta er listi forsætisráðherra, sem er með tæpan einn þriðja kláraðan af sínum verkefnum, einn þriðja farinn af stað og eitt verkefni ekki farið af stað, og svo listi dómsmálaráðherra og það eru 18 mánuðir fram yfir næstu kosningar. Telur dómsmálaráðherra sig ekki getað klárað þetta fyrir næstu kosningar? Ef það gerist þá treysti ég dómsmálaráðherra. Telur dómsmálaráðherra að hún geti flýtt vinnunni þannig að hún sé kláruð fyrir næstu kosningar?
(Forseti (SJS): Það ber að ávarpa ráðherra sem hæstv. ráðherra.)