151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

aðgerðir gegn spillingu.

[10:40]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Það er margt í þessu sem ég tel að verði uppfyllt með nýjum lögum en lagt verður fram frumvarp um það fyrir áramót, eins og ég nefndi í fyrra svari. Í lögreglulögunum, í því sem við erum að breyta, er ekki bara endurskoðun á skipulagi lögreglu og verksviði ríkislögreglustjóra heldur líka eftirlit með störfum lögreglu, rannsóknir þegar upp kemur grunur um refsiverða háttsemi lögreglu í starfi. Og ég er búin að ítreka það með breytingum sem krefjast ekki lagabreytingar, og í samtölum mínum við lögregluráð og alla lögreglustjóra og leggja ríka áherslu á að störf innan lögreglunnar séu auglýst. Er unnið að því innan lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar að uppfylla þau tilmæli sem beinast sérstaklega að þeim og við höfum rekið á eftir að verði lokið.

Ég held því að margt verði klárað á næstu mánuðum er lýtur að GRECO, en það eru kannski einhverjar athugasemdir þarna sem krefjast meiri pólitískrar umræðu og það er mikilvægt að komi fram í umræðu um lögreglulögin þegar frumvarpið kemur fyrir þingið. (Forseti hringir.) En ég held að við höfum stigið mörg skref til að svara þessu og það er ekki rétt að bera þessi tvö ráðuneyti saman eins og hv. þingmaður gerði.