151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu.

[10:42]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það var sorglegt að fylgjast með atburðarásinni á Landakoti og ég votta aðstandendum mína dýpstu samúð. Það er mjög mikilvægt að málið verði rannsakað enn frekar. En bráðabirgðaskýrsla sýnir að alvarlegur ágalli er á heilbrigðiskerfinu okkar. Það er ágalli sem við hér inni berum ábyrgð á og verðum að bregðast við. Við ráðherra erum væntanlega hjartanlega sammála um að skýrslan undirstriki þörf á fleiri hjúkrunarrýmum og bættri aðstöðu öldrunarlækninga og nýju þjóðarsjúkrahúsi, sem er loksins í ágætum farvegi eftir margra ára tregðu og sinnuleysi.

En það er ekki nóg að byggja spítala og hjúkrunarheimili. Það þarf líka að reka þau og þarf að manna þau. Mönnunarvandinn í íslenska heilbrigðiskerfinu er risavaxin áskorun og kallar á langtímaáætlun um að bæta aðbúnað og kjör heilbrigðisstétta. Við í Samfylkingunni höfum talað fyrir því að ráðist verði í átak gegn undirmönnun í almannaþjónustu til að fjölga störfum í atvinnukreppu og bæta heilbrigðisþjónustu og mikilvæga þjónustu við fólk. Um þær hugmyndir hefur ráðherrann sagt, með leyfi: Það er einhver versta hugmynd sem ég hef heyrt, að nú sé ástæða til þess að fjölga opinberum störfum og nú þurfi einfaldlega að hlaupa hraðar og gera betur.

Ég vil því spyrja: Er hæstv. fjármálaráðherra enn á þessari skoðun? Eða er hann tilbúinn til að taka undir ákall okkar í Samfylkingunni um að ráðist verði í stórátak gegn undirmönnun í almannaþjónustu? Er virkilega ekki mögulegt að ná breiðri samstöðu um það á Alþingi að nauðsynlegt sé að ráðast gegn undirmönnun í heilbrigðis- og öldrunarþjónustu til að tryggja elsta og veikasta fólki samfélagsins betri lífsskilyrði?