mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu.
Herra forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni varðandi alvarleika þessa atviks á Landakoti. Ég ætla hins vegar að bíða eftir niðurstöðu landlæknis um það hvað menn telja að hafi þar farið úrskeiðis. Ég held að það sé almennt ekki góð aðferðafræði að þeir sem sjálfir bera ábyrgð á rekstrinum úttali sig um það og eigi síðasta orðið um hvað hafi verið að. En sjáum til með það. Mér finnst það kannski ekki vera aðalatriðið hér.
Hér er verið að ræða um öldrunarþjónustu almennt í landinu. Hv. þingmaður spyr og mér finnst hann í raun og veru gefa í skyn að það eina sem þurfi að gera sé að ráðast á mönnunarvanda. Ég lít ekki þannig á. Athugasemdir mínar við hugmyndafræði Samfylkingarinnar um að við eigum að komast út úr kreppunni með því að fjölga opinberum störfum snúast um það að menn verði að gera sér grein fyrir rót vandans. Rót vandans sem við stöndum frammi fyrir núna er hrun í einkageiranum. Það er rót vandans. Við verðum að ráðast á þá rót með því að örva, skapa, tryggja að viðspyrna sé til staðar og auka landsframleiðsluna nýju. Ef það mistekst höfum við ekki efni á að halda úti þeirri opinberu þjónustu sem við höfum í dag, hvað þá að fara að stækka kökuna þeim megin. Við munum ekki hafa efni á því. Við erum að gera það með tæplega 300 milljarða halla á þessu ári og munum gera það aftur á næsta ári. Ef hugmyndafræðin er bara sú að auka á þann vanda held ég að menn sjái ekki skóginn fyrir trjánum.
Ég ætla að segja um hjúkrunarheimilin almennt að ég held að gera þurfi miklu meira og fara í miklu róttækari endurskoðun en bara það að ráðast á mönnunarvandann. Við þurfum að stokka kerfið upp. Við þurfum að horfast í augu við að þjóðin er að eldast. Við verðum að horfast í augu við að það verkefni, fyrir okkur sem þjóð, er að fara að stækka. Við þurfum að ræða allt frá því að hækka lífeyristökualdur yfir í það hvernig við ætlum að fjármagna og reka þessi úrræði til framtíðar (Forseti hringir.) og búa til miklu fjölbreyttari leiðir fyrir fólk sem er að eldast til að fá þjónustu.