151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu.

[10:48]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég tel að hér sé verið að nálgast málið frá röngum enda. Mér finnst hv. þingmaður leggja aðaláherslu á að þetta verði allt saman opinberir starfsmenn. Fyrir mér er það algjört aukaatriði. Ég horfi þannig á að það sé ákveðinn réttur sem fólk hefur samkvæmt því tryggingakerfi sem við erum að byggja upp til að fá þjónustu. Ég sé fyrir mér stærri, öflugri, þess vegna fleiri sjálfseignarstofnanir sem ráða til sín fólk til að sinna þessum verkefnum.

Ég get tekið undir að þetta sé vaxandi vandi. Ég held það þurfi meira rekstrarfé í þetta og ríkisstjórnin er einmitt að ræða um þessar mundir að fjölga þurfi rýmum og koma með fjármagn þar á bak við. Það hefur verið gríðarleg áskorun fyrir okkur sem þjóð að fara úr þessum eldri hjúkrunarheimilum, þar sem menn voru með tvo og þrjá í rými, yfir í einsetningu. Það hefur verið gríðarleg áskorun og kostað mikla fjármögnun. En mér finnst að það þurfi að fara miklu dýpra ofan í sjálfa rót kerfisins og skilgreina upp á nýtt og horfa á þetta út frá þeim sem á að þiggja þjónustuna, (Forseti hringir.) að fé fylgi fólki og þannig muni þjónustuleiðirnar skapast. Það er mín skoðun.