151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

ríkisaðstoð til minnstu fyrirtækjanna.

[10:49]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Um leið og ég vil hrósa sóttvarnaþríeykinu okkar vil ég nota tækifærið til að hrósa þjóðinni og hrósa almenningi. Við höfum oft verið talin með snert af mótþróaröskun í gegnum tíðina, en við höfum á undraskömmum tíma farið eftir fyrirmælum, náð að uppfylla grímuskyldu mjög hratt og ekki síst lærðum við að bíða í biðröð; og það hefði þurft að segja mér það nokkrum sinnum að við Íslendingar yrðum svona fljót að læra það, en það erum við að gera. Við sjáum að samfélagið er að gera hvað það getur til að við getum komist í gegnum þetta tímabundna ástand sem þetta er, ekki síst í ljósi frétta um bóluefni.

Ég vil hins vegar draga það fram að á blaðamannafundum ríkisstjórnarinnar í upphafi kom í ljós að verið var að kynna til leiks mjög mikilvægar aðgerðir, aðgerðir sem áttu að kosta 230 milljarða. Síðan hefur komið í ljós að þetta eru í kringum 85 milljarðar og uppistaðan í því er hlutabótaleiðin, sem var mjög vel útfærð og góð, og síðan atvinnuleysisstyrkir eða atvinnuleysisbætur. Við erum því ekki að sjá styrkina eða viðbótarfjármagn fara að ráði inn í hagkerfið og það eru ýmsar aðrar tölur sem hafa verið að draga þetta fram.

Við höfum líka verið að fá ábendingar, m.a. frá konum sem hafa verið í viðtölum. Hildur Valgeirsdóttur er bókari og hefur dregið það fram að einyrkjar, samlagsfélög, falla ekki undir þessa rekstrarstyrki. Við sjáum lítil fyrirtæki í ferðaþjónustu draga það fram að það vanti úrræði sem gagnist minnstu fyrirtækjunum. Það er ítrekað verið að benda á það.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann taki undir þær áhyggjur að við séum ekki að beina fjármagninu inn á þá staði þar sem raunveruleg þörf er á þeim. Við reyndum það. Ég vil frekar sjá að stjórnvöld reyni að koma með tillögur þó að í þeim felist mistök. Við sjáum t.d. að brúarlánin eru ekki að skila sér út í samfélagið, út í fyrirtækin. Ég tek undir það með ráðherra (Forseti hringir.) að við þurfum að hlaupa hraðar. Við þurfum að horfast í augu við það að það er einkageirinn sem féll og við þurfum líka að koma til móts við það fall sem hefur átt sér stað innan einkageirans. (Forseti hringir.) Þess vegna er ég með ákveðnar áhyggjur, virðulegur forseti, af því að fjármagnið sé ekki að skila sér til litlu fyrirtækjanna og til einyrkjanna, og spyr hvort ekki megi bæta þar úr.