151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

ríkisaðstoð til minnstu fyrirtækjanna.

[10:54]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Já, svigrúm jókst á fjármálamarkaði en við sjáum það líka að fjármagnið sem fór í umferð fór fyrst og fremst til þess að styrkja meira en meðalmanninn, þ.e. að styrkja húsnæðismarkaðinn. Það má velta því fyrir sér, og það hefur verið gert af hagfræðingum, hvort það hafi verið rétt forgangsröðun. En gott og vel. Ég fagna því að fjármálaráðherra er einmitt með fókusinn á tekjufalli fyrirtækjanna. Það skiptir gríðarlega miklu máli. Það er fyrst og fremst út af stjórnvaldsaðgerðum sem fyrirtæki hafa þurft að loka, ekki síst þessi litlu fyrirtæki sem tengjast huga og hönd. Við erum að tala um listafólkið, hárgreiðslufólkið, nuddara, markþjálfa og fleiri sem hafa þurft að loka. Það skiptir máli að komið sé til móts við það. Ég minni á að fólkið úti á akrinum er að benda á að aðferðir ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda eru ekki að virka.

Ég vil undirstrika að við í Viðreisn höfum sagt: Tökum stór skref strax. En við höfum líka stutt ríkisstjórnina í því að breyta málum til að koma til móts við fólkið sem og ákalli fólksins (Forseti hringir.) og ekki síst til þess að hliðra fyrir og liðka fyrir. Og ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að beina því til þingsins að breyta því sem breyta þarf svo að fólkið og fyrirtækin geti lifað af (Forseti hringir.) þann skamma tíma sem eftir er af þessari veiru.