ríkisaðstoð til minnstu fyrirtækjanna.
Virðulegi forseti. Ég tel að það sé rangt að aðgerðir okkar séu ekki að virka. Við sjáum það t.d. á því hvernig fjármagnið dreifist sem greitt hefur verið út. Hverjir eru að nýta sér greiðslufresti? Hverjir hafa sótt í styrkina? Það eru greinarnar sem eru einkennandi fyrir að hafa orðið fyrir tekjufalli, t.d. ferðaþjónustan. Við náum einmitt sérstaklega þangað þar sem tekjufallið hefur orðið langmest. Ég verð að lýsa yfir ákveðinni furðu þegar menn stíga inn í umræðuna núna og segja að peningarnir rati ekki þangað sem þeir eiga að vera að fara. Það sé ekki nógu gott að heimilin séu að endurfjármagna. Ég skil ekki hvert menn eru að fara. Eru menn að segja að Seðlabankinn hefði ekki átt að lækka vexti? Eru menn að segja að það hafi einhver kostnaður orðið til hjá ríkissjóði við það að heimilin endurfjármagni? Ég skil ekki alveg hvert menn eru að fara. Ég lít á þetta sem gríðarlega jákvætt skref og það er m.a. vegna þess að við afnámum stimpilgjald fyrir endurfjármögnun húsnæðislána fyrir ekki löngu síðan, gríðarlega jákvætt, að heimilin hafi einmitt getað nýtt sér lægra vaxtaumhverfi til að draga úr greiðslubyrði sinni, þessi sömu heimili sem svo margir í hinu orðinu lýsa yfir áhyggjum af (Forseti hringir.) að geti ekki náð endum saman. Þetta eru jákvæðir hlutir sem eru að gerast þarna og það ber að varast að ganga of langt í að miðstýra því í gegnum ríkissjóð hvert peningar í hagkerfinu eiga að fara.