151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

[11:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég held að eitt af því sem geti skipt mjög miklu máli í þessu sé að menn fari áfram og betur yfir útreikninga á þjóðhagslegu gildi þessara framkvæmda, þessa verkefnis. Við höfum auðvitað tekið eftir því að það hafa komið fram ólík sjónarmið um hvaða forsendur ætti að leggja til grundvallar þegar menn reikna út þjóðhagslegan ávinning af þessum gríðarlega miklu fjárfestingum. Við erum að tala um fjárfestingar sem eru u.þ.b. að hálfu leyti í vegakerfinu og að hálfu leyti í því að greiða betur fyrir almenningssamgöngum. Það hafa komið fram ábendingar frá reynslumiklu fólki á þessu sviði, bæði verkfræðingum og hagfræðingum, um að menn ættu að gá betur að forsendunum sem hafa verið settar inn í útreikninga við þjóðhagslegt virði framkvæmdanna. Þetta eru auðvitað atriði sem okkur ber skylda til þess að gaumgæfa og tryggja að við séum að verja fjármununum vel og ná þeim markmiðum (Forseti hringir.) sem við stefnum að. Það eru svona þættir, miklu frekar en einhver einstök gatnamót, sem ég tel að geti sett þessi verkefni öll í nýtt ljós.