sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Við ræðum sóttvarnaaðgerðir vegna Covid-19 með sérstakri áherslu á smitrakningar sem aðferðafræði eða hluti af aðferðafræði. Þessi faraldur sem byrjaði í lok febrúar leiddi okkur í raun og veru strax að tiltekinni nálgun sem varð mjög fljótlega sérstök fyrir Ísland. Þegar um miðjan marsmánuð hafði okkur tekist með aðstoð Íslenskrar erfðagreiningar að margfalda sýnatöku þannig að það gekk vel að greina þau tilfelli sem komu til landsins. Sú aðferðafræði sem þá þróaðist var frá upphafi að taka mjög mikið af sýnum, bæði hjá þeim sem voru með einkenni en líka hjá einkennalausum til að átta sig á útbreiðslu faraldursins í samfélaginu, átta sig á einkennalausu samfélagssmiti sem gæti viðhaldið faraldrinum og aukið útbreiðslu hans.
Einnig var komið strax á fót öflugu smitrakningarteymi og öllum þeim sem höfðu verið í snertingu við smitaða einstaklinga var gert þá strax að fara í 14 daga sóttkví. Þannig varð okkar nálgun frá byrjun, auk almennra einstaklingsbundinna hreinlætisaðgerða og fjarlægðarmarka, númer eitt að taka mikið af sýnum, númer tvö að beita öflugri smitrakningu og númer þrjú að beita sóttkví fyrir þá sem minnsti grunur lék á að hefðu verið í nálægð smitaðra einstaklinga.
Á þessum tíma eða í fyrstu bylgjunni voru tekin rúmlega 60.000 sýni og yfir 20.000 einstaklingar fóru í sóttkví. Af þeim sem greindust með smit á þessum tíma voru tæplega 60% í sóttkví og höfðu því ekki náð að dreifa smitinu áfram, sem var augljóslega ein af meginástæðunum fyrir því hversu fljótt og vel gekk að ráða niðurlögum þessarar fyrstu bylgju, en frá því í byrjun maí greindust aðeins stöku smit eins og allir muna.
Þegar sú bylgja sem við erum að glíma við núna fór að gera vart við sig í lok júlí, stundum kölluð önnur bylgja en stundum aðdragandi að síðari bylgju, höfðum við að sjálfsögðu gagn af þeirri reynslu sem hafði skapast í fyrstu bylgjunni og áfram var haldið fast við þessa aðferð sem hafði gefist vel í fyrstu. En að auki var hafin skimun á landamærum sem hófst um miðjan júní. Um miðjan ágúst var þessi skimun tvöfölduð með fimm daga millibili þar sem einstaklingur hafði smitað þrátt fyrir neikvætt sýni við komu til landsins. Síðan þá hafa 72 einstaklingar greinst með veiruna við sýnatöku tvö þrátt fyrir neikvætt sýni við komu. Aðferðafræðin í þessari bylgju hefur því verið sú sama og í fyrstu bylgju en við hefur bæst lokun landamæra með tvöfaldri sýnatöku og fimm daga sóttkví á milli, eins og fólk þekkir.
Þessi bylgja núna hefur að stærðargráðu verið svipuð þeirri fyrri en álag á heilbrigðiskerfið hefur verið mun meira í þessari bylgju. Fjöldi innlagðra á sjúkrahús var mestur 40 sjúklingar í fyrri bylgju en hefur verið 70 í þessari. Það er óljóst hver skýringin er nákvæmlega, mögulega sú að eldri aldurshópar hafa smitast í seinni bylgjunni þó að fjöldi einstaklinga á gjörgæslu hafi verið hærri í þeirri fyrri. Eftir sem áður hefur þessi greining; smitrakning og beiting sóttkvíar, verið öflugt tæki til að vinna bug á bylgjunni. Áfram hafa 60% greinst í sóttkví og því er augljóst að smitrakning og sóttkví hafa komið í veg fyrir mun meira smit í samfélaginu.
Í nágrannalöndunum hefur smitrakning sýnt að u.þ.b. þriðjungur smita verður í fjölskyldum og á heimilum, þriðjungur á vinnustöðum og þriðjungur í veislum, matarboðum, á börum og öðrum samkomum og yfirleitt þar sem fólk virðir ekki fjarlægðarmörk. Það er ekki ástæða til að ætla að þetta sé öðruvísi hér á landi, en þó eru allar tölur lægri þannig að hópsmit skekkja þessa heildarmynd. Við erum til að mynda að tala um um eða yfir 50 vinnustaði þar sem litlir smitklasar hafa orðið eða mögulega fjórir til sex í hverjum hóp. Annars hefur smitrakning hér á landi kannski sérstaklega verið notuð til að finna einstaklinga sem hafa verið í nánu sambandi við smitaða einstaklinga og setja þá í sóttkví. Á þann hátt hefur tekist að koma í veg fyrir að þeir einstaklingar beri smitið áfram því eins og áður segir hafa 60% greindra tilfella frá byrjun verið í sóttkví.
Nú sér vonandi fyrir endann á þessari bylgju faraldursins en við erum engan veginn laus við veiruna. Hættan er augljós. Ef við slökum of mikið á þá mun faraldurinn koma til baka af fullum krafti. Þá ályktun getum við dregið bæði af okkar eigin reynslu en ekki síður reynslu annarra þjóða. Það er þess vegna mikilvægt að við höldum áfram að gæta ýtrustu varkárni. Virðum fjarlægðarmörk í umgengni við annað fólk, gætum að almennum sóttvörnum, verum heima við minnstu einkenni, vinnum að heiman ef slíkt er mögulegt og áhættuhópar sýni sérstaka varúð. Góðar fréttir af þróun bóluefna gefa tilefni til bjartsýni en engu að síður er ráðlegt að búa sig undir það að veiran muni hafa veruleg áhrif á líf okkar og samfélag næstu mánuði.