151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra opnun hennar á þessa umræðu. Í fyrsta lagi er ekki annað hægt en að benda góðlátlega á hversu lítillát yfirskrift umræðunnar er, en það er eins og gengur, ósk okkar allra er að við náum einstökum árangri í baráttu við þessa veiru, en lítillætinu er ekki fyrir að fara í þessu.

En mig langar til að nálgast þetta mál svolítið út frá því að hér er talað um árangur sem náðst hafi á grundvelli smitrakningar og þar fram eftir götunum. Í síðustu umræðu sem ég tók þátt í, þar sem hæstv. ráðherra var til svara hvað þessi mál varðar, kallaði hæstv. ráðherra eftir hverjar væru lausnir þess sem hér stendur og hverjar væru lausnir Miðflokksins. Því er m.a. til að svara að ég, sem hér stend, og Miðflokkurinn sem slíkur höfum ekki sömu upplýsingar og sóttvarnayfirvöld þegar kemur að því að meta hvaða leiðir eru skynsamlegastar hverju sinni. Því langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort það komi til greina hvað ráðherrann varðar að beita sér fyrir því að öll gögn sem fyrir liggja, allar greiningar, allar niðurstöður, allt sem sóttvarnayfirvöld eru að vinna með frá degi til dags, verði gerð opinber þannig að m.a. þingmenn eigi raunverulega möguleika til að glöggva sig á stöðunni, taka þátt í umræðunni á uppbyggilegan hátt og þar fram eftir götunum. Ég held að það skipti máli.

Ég kem inn á sjónarmið í seinni ræðu minni, í ljósi þessarar miklu og góðu smitrakningar, um hvaða upplýsingar liggi fyrir í því sambandi að nú eru skólar meira og minna lokaðir. Hvað hafa mörg börn undir tilteknum aldri raunverulega smitað áfram? Nú er verið að setja fjölskyldur í sóttkví um allt land á grundvelli þess að ung börn hafi orðið útsett fyrir smiti. Er einhver tölfræði sem liggur fyrir um að ung börn smiti áfram?