sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég vil ítreka spurningu mína úr fyrri ræðu varðandi það hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að beita sér fyrir því að opna á gögnin sem eru undirliggjandi til að auðvelda okkur umræðuna. Hæstv. ráðherra kom einmitt inn á það áðan að hún hefði ekki töluleg gögn tiltæk vegna smita barna. Ég skil það mætavel að ráðherrar séu ekki með alla þá tölfræði í kollinum sem fyrir liggur, ef svo má segja. Þannig að ég ítreka spurninguna: Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að mögulegt sé að opna aðgengi að þeim gögnum sem fyrir liggja? Sem eru gríðarmikil og myndu bæta alla umræðu, sérstaklega þegar hún er núna að færast inn á pólitíska sviðið, ef svo má segja, a.m.k. heyrist mér það vera þróunin.
Síðan langar mig þessu til viðbótar að segja að verið hefur í umræðunni síðustu daga að allt íþróttastarf sé í rauninni takmarkað mun meira en í löndunum í kringum okkur. Verið er að keppa í keppnisíþróttum, íþróttum með líkamlegri snertingu, eins og körfubolta, svo dæmi sé tekið, í löndunum í kringum okkur, og jafnvel ekki bara í atvinnumannadeildum. Er möguleiki að þarna séum við að ganga of langt hvað takmarkanir varðar? Benda einhver gögn til þess að þar sé meiri háttar smithætta til staðar? Ég get sagt fyrir mig að ég hef miklar áhyggjur af andlegri og líkamlegri heilsu, sérstaklega yngri hluta þjóðarinnar, og síðan eru íþróttirnar auðvitað afþreyingarþáttur fyrir þá eldri. Ég ítreka spurninguna: Er hæstv. ráðherra tilbúinn að beita sér fyrir því að opna á gögnin sem eru undirliggjandi til að bæta umræðuna? Hvert er sjónarmið hennar gagnvart því hvort of langt sé gengið ef við berum okkur saman við löndin í kringum okkur hvað takmarkanir á keppnisíþróttum varðar?