sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Fyrst um mikilvægi íþrótta. Þá vil ég fyrst tala um það út frá lýðheilsusjónarmiðum, af því að hv. þingmaður snertir aðeins á því líka, mikilvægi íþrótta í lífi og daglegri heilsu barna og ungmenna. Ég er sammála hv. þingmanni þar um og í fyrstu tilslökunum sem kynntar voru til sögunnar og gengu raunar í gildi í gær, eru íþróttir barna og ungmenna heimilar, þó er miðað við tiltekna hólfaskiptingu. Ég verð að segja það almennt, sem svar við spurningu hv. þingmanns um hvort við séum að ganga of langt, að þetta er náttúrlega viðfangsefni okkar á hverjum degi: Erum við að ganga of langt eða erum við að ganga of stutt? Við fáum alltaf rök í báðar áttir, að við séum að ganga of langt með því að skerða einhverja starfsemi, en sumir eru þeirrar skoðanir að við séum að ganga of langt í hina áttina. Okkar viðfangsefni er náttúrlega að meta þetta á grundvelli gagna og upplýsinga og fræðanna almennt um hegðun faraldurs, en ekki síður þeirrar þekkingar sem við erum að viða að okkur eftir því sem þekkingunni vindur fram á Covid-19, sem er ný veira og við höfum þekkt hana í þá mánuði sem hún hefur verið á kreiki.
Ég verð að segja það varðandi spurningar hv. þingmanns um gögn, að í gildandi sóttvarnalögum og í samræmi við þau hefur sóttvarnalæknir mjög ríkar heimildir til að fylgjast með útbreiðslu faraldursins og um það er talað í löggjöfinni. Það er auðvitað hluti af framkvæmdarvaldinu að viða að sér slíkum gögnum og vinna á grundvelli þeirra. Ég hef hins vegar verið talsmaður þess að almenn úrvinnslugögn, þ.e. tölur, heildartölur, eigi að vera ínáanlegar og það eigi að vera gagnsæi sem víðast. Ég hef raunar sjálf haft frumkvæði að því að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið þau gögn sem Páll Hreinsson fékk til að gera úttekt fyrir sitt leyti (Forseti hringir.) á lögmæti þeirra ráðstafana sem ráðist hefur verið í hingað til, vegna þess að ég tel mikilvægt að þetta sé eins gagnsætt og nokkurs er kostur.