151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:29]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Fyrst um þá reynslu sem við höfum verið að viða að okkur í glímunni við Covid-19. Hv. þingmaður segir að við höfum vitað það í byrjun þegar veiran nam hér land í lok febrúar að við hana yrði ekki ráðið með öðrum leiðum en bólusetningum. Það er nokkur einföldun en skiljanlegt þegar maður lítur um öxl að í minningunni hafi það verið þannig að til að byrja með hefðum við getað vænst þess að veiran hefði tekið 10–12 vikur og svo hefði hún einfaldlega verið að baki. Þannig að þegar við byrjuðum glímu okkar við veiruna, og ég held að allir muni eftir því, vorum við þeirrar trúar að það dygði okkur að snúa bökum saman og við myndum keyra í gegnum þetta og svo í sumar yrði allt aftur eins og venjulega.

Síðan, eftir því sem þessu hefur undið fram, höfum við áttað okkur sífellt betur og betur á því að þetta tekur lengri tíma og að bóluefnið er nauðsynlegur þáttur í því að vinna bug á veirunni. Nú er staðan þannig að við sjáum fyrir endann á þessari glímu, við vitum það ekki nákvæmlega, en að öllum líkindum, og ég held að sé alveg ábyrgt að segja það, ætti bóluefni að vera aðgengilegt á árinu 2021. En það er líka alveg ljóst að það mun koma til okkar í litlum skrefum, þannig að við munum ekki vera með bóluefni til að bólusetja alla þjóðina frá fyrsta degi. Við verðum því að miða aðgerðirnar og breytingar á aðgerðunum við þau skref sem við stígum í tengslum við bólusetningar. Það er því til of mikils ætlast að við getum sagt fyrir um það núna hverjar takmarkanirnar verða inn í næstu mánuði og misseri. En við erum að vinna að því að tryggja meiri fyrirsjáanleika og ég get farið yfir það í seinna svari mínu.