151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Nú er það þannig að við njótum þeirrar stöðu á Íslandi, ekki bara að sjá í raun og veru ótrúlega mikinn árangur af aðgerðum okkar, sem er örugglega að hluta til sóttvarnayfirvöldum að þakka og þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið, en líka vegna þess að samfélagið okkar er lítið, það eru stuttar boðleiðir. Við erum upplýst samfélag, við erum eyríki. Við höfum mjög margt annað með okkur sem skiptir máli. En fyrst og fremst erum við í þeirri stöðu að yfir 75% þjóðarinnar eru sammála því sem við erum að gera. Og það er miklum mun hærri tala en við sjáum í löndunum í kringum okkur. Þannig að ég tel að íslenskt samfélag sé tilbúið að ljúka baráttunni við Covid-19 með sóma, eins og við höfum gert hingað til, þangað til við ráðum niðurlögum hennar með bólusetningum.