151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra - Ein umræða.

[11:33]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa skýrslu. Óvissa eða nagandi ástand og versta staða hvers einstaklings, svo ekki sé talað um heila þjóð. Það er veiruskrattinn sem skapar þessa óvissu okkar allra.

Virðulegur forseti. Ef einhver vissi nákvæmlega hvernig ætti að bregðast við vandanum þá værum við ekki stödd í þessari umræðu, það liggur fyrir. Allt sem gert er og sagt er á að þola umræðuna og skoðanaskipti um það sem gert er, eru eðlileg. Það á ekki síst við um sóttvarnir og ráðleggingar okkar besta fólks um takmarkanir á okkar daglega lífi. Þrátt fyrir að mínar skoðanir falli ekki alltaf að ráðleggingum þríeykisins hef ég sjálfur ekkert betra fram að færa. Það hafa skipst á skin og skúrir í því sem gert hefur verið. En það er eðlilegt þegar óvissan er slík og í rauninni veit enginn hvað dagurinn býður upp á þegar maður vaknar að morgni.

Virðulegur forseti. Réttur minn felst líka í því að virða rétt annarra til heilsu og heilbrigðis. Það er í rauninni skylda mín að virða rétt hvers manns í því sambandi. Við erum samfélag sem þarf að standa saman og þar gilda hagsmunir heildarinnar umfram mína eigin. Þess vegna hef ég stutt þær aðgerðir sem ráðherrann og ríkisstjórnin hafa lagt til. Ég hef stutt framlínufólkið, lögregluna, smitrakningarteymin, hjúkrunarfræðinga og þá sem sinna þeim sjúku sem lenda í klóm veirunnar.

Virðulegur forseti. Í ljósi óvissunnar og þekkingarskorts okkar er ósanngjarnt að ég spyrji ráðherrann, en samt langar mig að vita hvernig hæstv. ráðherra sér nánustu framtíð fyrir sér, hvenær landamæri landsins opnast, hvernig daglegt líf okkar getur orðið eðlilegt á ný.