151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:36]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og einhver sagði þá væri ég líklega ekki hér ef ég gæti svarað til um hvernig framtíðin mun líta út. En þó get ég sagt það við hv. þingmann að það opnaðist í raun og veru nýr kafli þegar fréttir bárust af fleiri en einu fyrirtæki sem væri búið að þróa bóluefni gegn Covid-19 með góðum árangri. Þá erum við komin í þann kafla baráttunnar að við sjáum fyrir endann á henni, að við sjáum ljósið handan við göngin.

Hvað gerist í nánustu framtíð? Ég tek eftir því að í löndunum í kringum okkur er misjafnt hvað stjórnvöld og vísindamenn segja um bóluefnið. Hvenær verður það komið og hvenær getum við farið að vænta þess að það fari að hafa umtalsverð áhrif? Það eina sem ég get fullvissað þingheim um er að við erum mjög vel sett hvað varðar aðgang að nýjustu og bestu bóluefnum. Við höfum þegar tryggt okkur aðgang að yfir 200.000 skömmtum þegar þeir verða tilbúnir og erum á leiðinni með samninga við þrjú eða fjögur önnur fyrirtæki. En hins vegar þýðir það ekki að allir þessir 200.000 skammtar komi til landsins á sama tíma. Við vitum það og við höfum raðað upp einhvers konar drögum að forgangsröðun þar sem við erum með heilbrigðisstarfsfólkið okkar sem er að vinna á Covid-deildunum, á gjörgæslunni o.s.frv., og eldra fólk myndi augljóslega njóta forgangs. Síðan yrðum við að láta afléttingar haldast í hendur við þær breytingar á hættunni á útbreiðslu smita, sem við sæjum með því að bóluefnin kæmu inn skref fyrir skref.

Virðulegur forseti. Ég myndi halda og vona að við gætum farið að bólusetja fyrir mitt næsta ár.