sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég þakka svar ráðherrans. Sá er hér stendur hefur upplifað ýmislegt á sinni nokkuð löngu ævi; eldgos og jarðskjálfta og alheimsplágu sem nú gengur yfir, eins og margir aðrir hafa mátt þola. Ég velti því fyrir mér, og það er náttúrlega enn ein ósanngjörn spurningin til ráðherrans, þeirri aðstöðu sem okkar besta fólk býr nú við, heilbrigðisstarfsfólkið, lögreglan og hjúkrunarfræðingar og þeir sem reyna að rekja smit: Hvernig getum við sem þjóð og við sem Alþingi og þú sem ráðherra, þegar þessu verður lokið, búið okkur undir að gefa meira svigrúm í t.d. heilbrigðiskerfinu, í löggæslunni, til þess að við séum kannski aðeins betur í stakk búin þegar næsta ólag ríður yfir? Og það mun koma.