sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Eins og fram kom í inngangi mínum áðan þá liggur það alveg fyrir, og okkur hefur verið bent á það, að einn af flöskuhálsunum í kerfi okkar er greiningargetan. Við höfðum ekki yfir að ráða nægilegri greiningargetu, þ.e. opinberar stofnanir, til að ráða við fyrstu bylgjuna, og þá nutum við fulltingis Íslenskrar erfðagreiningar. Það skipti öllu máli í fyrstu skrefum í glímunni að við hefðum þekkingu á útbreiðslu veirunnar í samfélaginu hjá þeim sem voru einkennalausir. Það var algjört lykilatriði. Við erum byrjuð að byggja nýjan meðferðarkjarna við Hringbraut. Það er stórmál að færa aðstöðu og húsnæði íslenskrar heilbrigðisþjónustu inn í nútímann. Það skiptir alveg gríðarlega miklu máli. En við þurfum að halda áfram að byggja upp bæði mönnun, aðstöðu, þekkingu, vísindi og rannsóknir o.s.frv. En íslenskt heilbrigðiskerfi hefur, þó að það sé smátt og viðkvæmt, staðið sig alveg ótrúlega vel í þessu áhlaupi veirunnar.