sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Meðalhóf og jafnræðisregla hefur alltaf verið okkar leiðarljós í öllum þeim aðgerðum sem boðaðar hafa verið hér á landi og ég vil fullvissa hv. þingmann um að það er alltaf minn vilji að stíga þau skref að losa um hömlur frekar en hitt, enda er nákvæmlega það sem hv. þingmaður spyr hér um varðandi íþróttir til skoðunar í næstu skrefum.
Hv. þingmaður spyr líka sérstaklega um það hvers vegna áfram sé val um það á landamærum að fara í sóttkví. Ástæðan er sú að sóttvarnalæknir vekur athygli mína á því í minnisblaði og segir: Það eru 2,6% sem velja það að fara í sóttkví og við höfum áhyggjur af þessum hópi, að hann kunni að „sleppa í gegn“ og valda smitum. Sóttvarnalæknir segir: Til þess að ná utan um þennan hóp höfum við tvær leiðir. Önnur leiðin er að skylda alla í sýnatöku en hin leiðin er að falla frá gjaldtöku vegna þess að starfsfólk á landamærum miðlar okkur þeim upplýsingum að ástæða sé til að ætla að margir neiti því að fara í sýnatöku vegna þess að fólk hafi ekki efni á því að greiða fyrir.
Þegar ég, talandi um meðalhóf, stend frammi fyrir þessum tveimur valkostum tel ég rétt, að höfðu samráði við ráðherranefnd, að fara þá leið að falla frá gjaldtöku. Við sjáum væntanlega mjög fljótt hvort við náum með þessari aðferð utan um allan hópinn og það munum við vonandi gera vegna þess að það er markmiðið með þessari aðgerð. Það er ekki síður vegna þess að sú nálgun einkennist frekar af meðalhófi en sú að skylda alla í sýnatöku. Auk þess hefur komið fram að það er (Forseti hringir.) flókið að sækja þær heimildir sem þar væru til grundvallar, af hendi lögreglu (Forseti hringir.) eða annarra starfsmanna á landamærum, ef þvinga ætti fólk í sýnatöku gegn vilja þess.