sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Þetta eru áhugaverðar umræður í dag, eins og gera mátti ráð fyrir. Mér fannst bæði fallegt og skemmtilegt á upplýsingafundi almannavarna á mánudaginn þegar þau sem þar voru til svars voru spurð út í sitt uppáhalds Covid-tengda nýyrði þá var svar Ölmu Möller landlæknis einmitt orðið smitrakning, sem við leggjum áherslu á og fjöllum um hér í dag.
Þegar smitrakning og sýnataka fóru af stað af fullum krafti hér á landi var fljótlega bent á að Ísland væri kjörið til rannsókna á veirunni. Kannski er partur af því að vegna smæðar okkar og félagslegs trausts er auðveldara að ná til fólks og samkvæmt nýjustu tölum á covid.is hafa ríflega 200.000 sýni verið tekin innan lands og rúmlega 44.000 manns lokið sóttkví. Það er því ljóst að náðst hefur til mjög stórs hluta þjóðarinnar í baráttunni gegn Covid hér á landi. Það eru auðvitað ýmis sjónarmið sem taka þarf tillit til þegar kemur að smitdreifingu, vegna smæðar okkar verður t.d. mikilvægara að gæta að persónuverndarsjónarmiðum, sem við höfum áður rætt, enda eru heilbrigðisupplýsingar viðkvæmar persónuupplýsingar. Það hefur því verið afar gott að þegar vafaatriði varðandi persónuvernd hafa komið upp hafa þau verið uppi á borðum og almenningur hefur fengið skýr svör jafnt og þétt. Við höfum líka haft smitrakningarappið.
Mig langar að koma aðeins inn á það af því að nú þegar við sjáum vonandi fyrir endann á núverandi bylgju — maður talar ekki lengur um neina síðustu bylgju, þetta er bara núverandi — þegar hún var á uppleið komu fram nokkuð óþægilegar tölur um fjölda smita utan sóttkvíar. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hversu mikla þýðingu hefur smitrakningin almennt haft þegar kemur að okkar góða árangri við að stemma stigu við faraldrinum og hversu góð not hafa verið af appinu? Veit ráðherrann hversu margir eru með appið eða hafa skráð sig úr appinu?