151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:53]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það er rétt sem fram kemur í máli hv. þingmanns, að smitrakningarappið hefur verið eitt af þessum lykilverkfærum sem hafa hjálpað okkur við að rekja smit. En ekki síður hefur verið mikilvægt að nýta appið til að koma upplýsingum til fólks, vegna þess að það hefur líka verið nýtt í því skyni.

Tölurnar. Ég er ekki nákvæmlega með töluna eins og hún er í dag, en við vitum að það eru fleiri tugir þúsunda sem hafa hlaðið því niður og það munar verulega um það. En eins og einnig kemur fram í máli hv. þingmanns þá koma fjölmörg sjónarmið þarna inn, og þá kannski sérstaklega persónuverndarsjónarmið. Það skiptir mjög miklu máli að gætt hefur verið mjög vel að þeim í öllu þessu ferli og embætti landlæknis hefur verið í samstarfi við Persónuvernd í öllu ferlinu alveg frá byrjun þegar verið var að þróa appið og skoða hvernig það kæmi að bestum notum.

Í raun og veru þarf nýtt samþykki viðkomandi þegar á að fara að nota gögnin um hverjar ferðir viðkomandi voru. Það er aldrei þannig að gögnin úr appinu séu aðgengileg sóttvarnayfirvöldum án þess að það sé sérstaklega um það spurt í því tilviki, að sú spurning komi upp. Þannig að appið hefur fallið mjög vel inn í þá lagagrein sem ég nefndi hér fyrr í umræðunni, sem eru heimildir sóttvarnalæknis til að fylgjast með útbreiðslu sjúkdómsins. Þetta er auðvitað mjög viðkvæmt ákvæði í ljósi þess að maður þarf að fylgjast með sjúkdómum með því að fylgjast með fólki. Þar hefur líka verið fjallað sérstaklega um kreditkortafærslur og því um líkt, en þar er í raun og veru bara verið að spyrja spurningarinnar hvort viðkomandi hafi verið á tilteknum stað, ekki um kaupin eða upphæðina.