151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:55]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Við fengum dálítið góða útlistun á þessu með notkun kreditkorta þegar upp kom barsmitið svokallaða. Það er einmitt svo mikilvægt að almenningur átti sig á því að ekki er verið að fylgjast með neyslu hans heldur eingöngu verið að fylgjast með hvar fólk hefur verið. Eins og ráðherra kom inn á varðandi appið, þá þurfum við að gefa samþykki okkar fyrir því að það sé nýtt umfram það að fá SMS um við höfum kannski verið á einhverju tilteknu svæði, ef við höfum verið í námunda við einhvern sem hefur greinst smitaður.

En það er allur heimurinn undir í þessum faraldri og óhætt að segja að líf okkar flestra hafi farið á hliðina, það er kannski að gerast meira núna í öðrum löndum sem ekki hafa beitt jafn stífum sóttvörnum og við, þau þurfa að gera það þar sem ástandið er að verða óviðráðanlegt fyrir heilbrigðiskerfin. Auðvitað hafa heilbrigðisyfirvöld um allan heim gert einhvers konar mistök, held ég, og sjá það eftir á og eru að bæta aðferðir sínar og annað slíkt, sem er eðlilegt. Enda er veiran afar skæð og það eru allir að læra, við eins og allir hinir.

Ég tel að okkur hafi gengið vel og við búum að gríðarlegum mannauði víða í samfélaginu sem hefur verið og er enn undir gríðarlegu álagi vegna þessa. Aðventan er fram undan og öll viljum við væntanlega að njóta hennar með fjölskyldu og vinum. Og af því að það hillir í bóluefni þá held ég að sé mikilvægt að við stöndum öll saman og höldum áfram að passa okkur og fara varlega og slaka á, í fleiri skrefum en færri, af því að ég tel að sú leið sem verið er að fara sé rétt. Við getum aldrei gert svo öllum líki, það er alveg ljóst. En ég tel að við höfum sýnt það með þeim árangri sem við höfum náð að við séum á réttri leið.

Mig langar í lokin, af því að við höfum sett heilsu og líf algjörlega í forgang, að spyrja ráðherrann um litakóðakerfið, hvort og hvenær það verði tekið í notkun. Verða lítil svæði eða stór svæði og hvernig verður þetta kynnt fyrir almenningi?