sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Kannski aðeins áfram um smitrakningarappið, vegna þess að ég nefndi það ekki áðan, að í raun og veru er það ekki síst gagnlegt til að hjálpa til við að rifja upp það sem fólk skráir eðlilega ekki hjá sér nákvæmlega, þ.e. hvert það fór, á hvaða tíma o.s.frv., en appið hjálpar til og viðkomandi fyllir þá aðeins í eyðurnar.
Varðandi litakóðakerfið þá er það í vinnslu og ég hef ekki nákvæma tímasetningu á því. En það hefur sína kosti sem tæki fyrir almenning upp á gagnsæi og slíkt og upp á það að við vitum nákvæmlega hver staðan er o.s.frv. En enn og aftur er samfélag okkar svo lítið og fámennt að yfirleitt snýst þetta um stöðu faraldursins frá degi til dags, á hverju sjúkrahúsi um sig o.s.frv. og það kemur allt saman fram í fréttum. Við höfum séð á opinberum vefjum þegar við erum að skoða stöðu landanna í kringum okkur, að sums staðar er stöðu faraldursins haldið til haga eftir landshlutum og eftir lénum. Það á ekki síst við þá stöðu þar sem heilbrigðisþjónustan er skipulögð út frá þriðja stjórnsýslustiginu eða millistjórnsýslustiginu. Þá er í raun og veru nærtækara að halda utan um tölur og upplýsingar á slíkum grunni og fólk á síður erindi út fyrir sitt svæði en við eigum hér, þar sem þriðja stigs þjónustuna er fyrst og fremst að finna hér á höfuðborgarsvæðinu.
En þetta er eitt af því sem verið hefur í þróun á Íslandi og er til þess hugsað að bæta fyrirsjáanleika og auka gagnsæi í viðbrögðum.