sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Fyrir tveim vikum síðan þegar ég talaði um þetta mál hérna í þinginu við hæstv. heilbrigðisráðherra þá byrjaði ég ræðu mína á því að segja að upplýst umræða væri grundvöllur fyrir bæði farsælum sóttvörnum og vernd borgararéttinda á veirutímum. Hún er grundvöllur fyrir traustinu sem þarf að vera til staðar til þess að sóttvarnir virki. Sóttvarnalæknir hefur upplýst okkur um rökin að baki sóttvarnatillögum sínum. Þórólfur er að sinna skyldum sínum. Landlæknir vinnur við að taka saman upplýsingar um neikvæð áhrif sóttvarna á lýðheilsu almennings í heild. Alma er að að sinna skyldum sínum. Yfirlögregluþjónn hefur staðið sig mjög vel og tók m.a. þátt í að tryggja að Covid-smitaðir gátu kosið í vor. Hann hefur líka upplýst okkur um eigin mistök í starfi og lært af þeim. Víðir er að sinna skyldum sínum.
Skylda ráðherra er tvíþætt. Í fyrsta lagi að tryggja sóttvarnir og ráðherra er að því. Í öðru lagi að meta neikvæð áhrif þeirra aðgerða. Þetta er skýrt í álitsgerð Páls Hreinssonar til forsætisráðherra sem hann kom með á opinn fund í eftirlitsnefnd Alþingis til að viðra við okkur. Þar ítrekaði hann, eins og allir aðrir sérfræðingar sem komu fyrir nefndina, að við eigum að sinna eftirliti með því að ráðherra sé að starfa innan þessa ramma. Páll lagði niður rammann, innan hans á ráðherra að starfa og eftirlitsnefnd þingsins á að hafa eftirlit með því að ráðherra gerir það. Við erum komin aftur að tvíþættri skyldu ráðherra sem kemur fram í meðalhófsreglunni og segir í álitsgerð Páls að stjórnvald sem í þágu brýnna almannahagsmuna skerði frelsi eða mannréttindi borgaranna — sem er alveg nauðsynlegt núna — verði að vega þá almannahagsmuni sem mæla með skerðingunni gegn þeim hagsmunum sem skerðingin bitnar á.
Heilbrigðisráðherra hlýtur að vilja að þjóðin og þingið hafi þennan rökstuðning heilbrigðisráðherra, þetta heildarmat sem ráðherra skal leggja á borðið lögum samkvæmt. En ég hef ekki fengið þetta heildarmat. Ég hef ekki fengið mat á neikvæðu afleiðingunum (Forseti hringir.) þótt ég hafi ítrekað reynt það í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. (Forseti hringir.) En meiri hluti nefndarinnar vill ekki samþykkja upplýsingabeiðni til ráðherra. Ég verð að fá þessar upplýsingar. Hvernig getur ráðherra aðstoðað við það?