151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:02]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Eins og kemur fram í máli hv. þingmanns er gert grein fyrir því í sóttvarnalögum hver er skylda og ábyrgð hvers og eins í þessari ákvörðunartökukeðju sem er afar virk þessi misserin og þessa mánuðina. Það er jafn ljóst að til þess að taka afstöðu til einstakra tillagna sóttvarnalæknis þá verður ráðherra, sem er ráðuneytið, að leggja mat á það hvort aðgerðin sé í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttarins, lögmætiskröfuna, jafnræðisregluna, meðalhófsregluna o.s.frv., mannréttindasamninga og aðra og stjórnarskrá. Hins vegar er það þannig, af því að hv. þingmaður spyr með hvaða hætti sé hægt að tryggja að þetta mat rati á borð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að matið er viðvarandi og að sumu leyti getum við ekki enn þá séð fyrir endann á áhrifunum. Við getum ekki metið áhrifin fyrr en öll kurl eru komin til grafar, ef svo má að orði komast. Við erum að sjá núna bara þessar vikurnar og mánuðina nýjar upplýsingar sem snúast t.d. um áhrif á geðheilbrigði og ekki bara áhrif á geðheilbrigði sem koma til af því að viðkomandi hefur áhyggjur eða ótta eða hefur orðið fyrir áfalli eða slíku, heldur í raun og veru alvarlegar geðgreiningar sem fylgja því að hafa sýkst Covid-19. Þess vegna hef ég sett í gang núna tvo stýrihópa. Annar þeirra er að vakta sérstaklega lýðheilsuáhrif og þá er ég að tala um mataræði, svefn, hreyfingu o.s.frv., þær breytur allar, og hins vegar að meta áhrif á geðheilsu. Því miður, meðan við erum (Forseti hringir.) enn þá stödd í miðjum faraldri, þá getum við ekki sagt hvað kemur út úr því. En ég vil fullvissa hv. þingmann um að ég vil vera með augun á boltanum í þeim efnum.