151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:04]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Það er samt fullt af upplýsingum sem liggja fyrir. Á hverjum einasta tímapunkti sem hæstv. ráðherra skrifar undir reglugerð, eða í vor og þegar hún skrifaði undir auglýsingu, um að einhverjar íþyngjandi aðgerðir skuli lagðar á í þeim réttmæta tilgangi að stöðva útbreiðslu veirunnar þá liggja upplýsingar fyrir. Í hvert skipti sem hún segir að þessi hópur megi ekki lengur starfa eða að þessi hópur megi koma saman með takmörkunum, í hvert skiptis sem hún setur svoleiðis íþyngjandi aðgerð á einhvern hóp þarf það að liggja fyrir sem kemur frá sóttvarnalækni um það hvaða áhrif það mun hafa á að stöðva útbreiðslu veirunnar. Það sem vantar er að við sjáum hitt, sem verður að koma frá ráðherra. Ráðherra hafði eitthvað fyrir framan sig á mismunandi tímapunktum þegar hún tók hverja einustu ákvörðun. Það er það sem ég óska eftir. Það er það sem ég er að biðja um. Það er það sem verður að gera samkvæmt lögum. Ég hef þá skyldu að fylgjast með að ráðherra fylgi þeim lögum. Það er skylda mín að gera það en mér tekst ekki fá þær upplýsingar þótt ég hafi ítrekað reynt það.

Þetta er mjög einfalt. Horfið á þetta frábæra plakat, flott upplýsingamiðlun, á covid.is, sem hefur líka verið deilt á Facebook. Þar sjást hvað hópar þetta eru. Það er diskókúla fyrir skemmtistaði og hún er blá og undir hennar stendur bannað, óheimilt. Svo mega grunnskólanemendur koma saman með einhverjum takmörkunum. Þar sjáum við þetta skýrt. Við sjáum hvað er bannað og með hvaða hætti er verið íþyngja og hvaða hópum. Við sjáum tillögur sóttvarnalæknis, hvers vegna þetta er lagt til. Það sem vantar er matið sem átti að gera á því hvaða áhrif þetta hefur. Á hverjum tímapunkti liggur fyrir mat og mig vantar það mat. Getur ráðherra aðstoðað mig við að fá það?