151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:06]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og kom fram í fyrra svari mínu er það svo að alltaf við skrif reglugerða, alveg sama hvaða reglugerðir það eru, þá fer fram mat á því hvort það sé lagastoð fyrir því sem ráðherra eða ráðuneytið er að gera og hvað það er sem ráðherrann er að fara að setja nafnið sitt undir. Þessi úttekt er alltaf gerð á vegum ráðuneytisins. Stundum er hún gerð í sérstökum minnisblöðum. Stundum er hún gerð á fundum. Stundum er hún gerð með tölvupóstum. Hún er gerð með ýmsu móti og það er ekki minn vilji að sitja á einhverjum slíkum upplýsingum. Það veit hv. þingmaður, að ég hef engan áhuga á því. Þess vegna hef ég sjálf haft frumkvæði að því að öll gögn hafa farið til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og yfirlögfræðingur ráðuneytisins hefur hitt nefndina og ráðuneytisstjóri, en það eru þeir tveir embættismenn sem fara fyrir þessu mati fyrir mína hönd. Ég hef óskað eftir því við þá og ég hef verið upplýst um að það hafi verið sérlega gagnlegur fundur vegna þess að hann hafi verið upplýsandi um nákvæmlega þessi sjónarmið.

Ef hv. þingmaður er að óska eftir einhverjum öðrum gögnum þá er mér ekki ljóst hvaða gögn það eru. Það þyrfti þá að vinna þau upp í hendurnar á hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd aftur í tímann. Ég spyr hv. þingmanninn hvort hann telji ástæðu til að ætla að sú sem hér stendur hafi á einhvern hátt farið út fyrir valdheimildir sínar og hvort það sé þess vegna ástæða til að fara sérstaklega í saumana á því sem hér hefur verið gert.