151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:10]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég hef í raun og veru ekki fyrir framan mig tölfræðina um það nákvæmlega hversu oft smitrakningarappið hefur verið til hjálpar, en hins vegar veit ég að það hefur komið að gagni og stundum verið nákvæmlega sú viðbót sem þurfti fyrir fólk til að rifja upp ferðir sínar og hvar það var á hvaða tíma. Það er líka mikilvægt að segja það í þessari umræðu að það er ekki alltaf ljóst í hvora áttina smitið fer. Ef það eru tveir einstaklingar sem snertust á einhverjum tímapunkti, eða voru hvor nálægt öðrum á einhverjum tímapunkti, þá er ekki alltaf ljóst hvor var fyrr með smitið. Þannig er smitrakningin ekki alltaf frá A til B heldur er það stundum óljóst. Þess vegna er appið hjálplegt þegar við erum að tala um tiltekna tímapunkta o.s.frv.

Mér finnst þetta app vera dæmi um nútímalega heilbrigðisþjónustu, eða nútímalegt tækniverkfæri í heilbrigðisþjónustu, sem hjálpar okkur alveg ótrúlega mörg skref fram á veginn. Það sýnir hvernig samstarf einkaaðila og opinberra aðila getur verið gott og hjálplegt. Undir þessari pressu sem Covid-19 var, bara um leið og við sáum veiruna í febrúar, mars, var magnað að finna hvernig allir sneru bökum saman. Þá skipti ekki máli hver átti hvaða hugmynd o.s.frv., heldur voru allir að leggjast á árar með að ná árangri og framförum. Íslenska smitrakningarappið er nokkuð sérstakt á heimsvísu, bæði vegna þess hvernig það þróaðist og hvernig það hefur verið notað.