151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:12]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mikið hefur mætt á smitrakningarteymi almannavarna, en það fólk sem í því starfar hefur staðið í brúnni og unnið sleitulaust við að reyna að greina og finna allar ferðir kórónuveirunnar um samfélagið. Dagarnir hljóta oft að hafa verið langir og sérstaklega þegar tugur smita hefur greinst á sama sólarhring. Ég hugsa með hlýhug til þessara einstaklinga. Það er gott að hafa aðgang að góðu fólki þegar á reynir. Stærð teymisins hefur þróast í takt við það hvar við erum stödd í faraldrinum hverju sinni. Væntanlega hefur þá þurfti að hringja út fólk með stuttum fyrirvara. Hvernig hefur gengið að manna teymið? Hefur fólk verið jafn viljugt til að starfa í haust líkt og í vor? Er einhver munur þar á?

Þá verður mér hugsað til þeirra sem þurfa að hafa samband við þá einstaklinga sem hafa orðið útsettir fyrir smiti. Vonandi hafa samskipti í flestum tilfellum gengið greiðlega og einstaklingar verið samstarfsfúsir. Í því samhengi langar mig til að vita hvernig íslenska þjóðin hefur brugðist við símtölum frá rakningarteyminu. Hefur eitthvað verið um vandamál þar sem fólk hefur ekki viljað ræða við teymið og neitað að vera í samstarfi? Ef svo er, hvernig hefur þurft að bregðast við því?