151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:16]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég tel að hún sé öll af hinu góða hvað varðar þessar aðgerðir og við séum með smitrakningarforritið sérstaklega til umræðu hér í dag. Ég held að ég ætli nú ekki að verja miklu púðri í það verkfæri, ég tel að það sé mikilvægt og gagnlegt, ber mikla virðingu fyrir lögreglu og heilbrigðisstarfsfólki sem þessu verkfæri beita. Mikil notkun þess finnst mér til marks um ábyrgð þjóðarinnar, traust og þolinmæði með samstöðunni.

Ég vildi kannski rifja upp að á degi íslenskrar tungu þá var Alma spurð um uppáhaldsorð. Hún nefndi smitrakningu. Þórólfur talaði um hina fordæmalausu tíma og hjá Rögnvaldi kom fram orðið Covid-þreyta. Það held ég að sé skiljanlegt orð og ég hef eins og við öll, held ég, samúð með því að þjóðin finni fyrir henni og að svarið við Covid-þreytunni sé samstaða. Það var lykillinn, það var leiðarljósið í byrjun.

Mín spurning til heilbrigðisráðherra er kannski annars vegar spurning og hins vegar brýning því að ég trúi á mátt samstöðunnar og það sé eitt okkar mikilvægasta verkfæri í baráttunni við þennan heimsfaraldur. Vissulega er umræðan um þessar aðgerðir, og margþættar afleiðingar og hliðar þeirra, mjög af hinu góða. En hvaða þreytu erum við kannski ekki síst að horfa upp á af hálfu stjórnarliða í þeirri umræðu sem þar er að birtast? Er stjórnin kannski mögulega sjálf að stuðla að ruglingi í samfélaginu? Eru stjórnarliðar kannski sjálfir jarðvegur fyrir Covid-þreytu þegar menn eru í fjölmiðlum, eru að opna vefsíður og tala með ákveðnum hætti, stjórnarliðar sjálfir, um aðgerðir eigin stjórnar? Er þetta ekki áhyggjuefni?