sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna sem er fyrst og fremst pólitísk spurning, en varðar kannski ekki verkefnið sem er að ráða niðurlögum Covid-19. Það er sannarlega rétt, sem hv. þingmaður bendir á, að eftir því sem aðgerðunum vindur fram þá verður vart við meiri núning, fleiri spurningar, fleiri efasemdir og meiri þörf fyrir opna umræðu. Hluti af viðbragði við því er nákvæmlega það sem við erum að gera hér, þ.e. að ræða á vettvangi Alþingis stöðu faraldursins, stöðu aðgerðanna o.s.frv. Ég held að það sé til mjög mikils að vinna að sóttvarnaaðgerðir séu ekki pólitískt bitbein, að sóttvarnaaðgerðir séu ekki eitthvað sem skipar fólki í stjórnmálaflokka eða fylkingar á hinu pólitíska sviði. Við sjáum dæmi um það þegar slíkt gerist í samfélögum þar sem það að setja upp grímu er pólitísk yfirlýsing. Það er mjög bagalegt þegar slíkt gerist.
Það er ekki síst nákvæmlega þess vegna sem ég hef lagt áherslu á það að við förum að ráðum okkar besta fólks, að það hvernig við glímum við Covid-19 sé ekki markað fyrst og fremst pólitískri afstöðu hverju sinni heldur miklu frekar því sem við höfum getað státað okkur af í íslensku samfélagi, oft þegar á móti hefur blásið. Ég nefni til að mynda náttúruhamfarir, eldgos, jarðskjálfta og annað slíkt. Þá höfum við burði til að hefja okkur yfir (Forseti hringir.) pólitískt dægurþras og snúa bökum saman, enda erum við að því núna í stórum meginatriðum.