151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:21]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra kærlega fyrir svarið. Hún nefndi hið augljósa, að spurningin væri pólitísk. Það er rétt. Þetta er vitaskuld samhliða og einnig grundvallarumræða í pólitíkinni. Hæstv. ráðherra nefndi líka að spurningin varðaði kannski ekki verkefnið sjálft. Ég er því ósammála. Vissulega var ég ekki að þrengja mig alveg niður í að tala um smitrakningarappið eingöngu, en það er aldeilis verkefnið hver hin pólitísku skilaboð eru. Það er áhyggjuefni mitt að ríkisstjórnin, stjórnarliðar, þingmenn í stjórnarliðinu, sé að senda skilaboð sem eru misvísandi og með því mögulega að stuðla að þessari Covid-þreytu. Ég hef allan skilning á því að við höfum ólíkar skoðanir á þessu verkefni og hvaða verkfærum eigi að beita. En ég hefði haldið að það væri ábyrgðarhluti af hálfu stjórnarliða og ríkisstjórnarinnar allrar að tala sig saman að niðurstöðu og tala síðan einni röddu eftir það.