sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég vil bara taka undir athugasemd hv. þingmanns um að það er auðvitað rétt að þessi spurning varðar verkefnið sjálft vegna þess að kannski er stærsta verkefni stjórnvalda í hvaða samfélagi sem er að freista þess að tryggja samstöðu um verkefni. Það er auðvitað rétt og ég er sammála þeirri athugasemd hv. þingmanns. Um leið er það þannig að í lýðræðisþjóðfélagi talar fólk, fólk talar opið og fólk talar út og þannig samfélag viljum við. Við viljum samfélag þar sem ágreiningur er ekki leiddur til lykta í lokuðu rými, svo komi fólk út úr því rými og allir tali í kór heldur sé það þannig að ef það eru efasemdir, ef það eru spurningar, sé það partur af hinni málefnalegu umræðu í samfélaginu. Ég er þeirrar skoðunar. En um leið þá vil ég þakka hv. þingmanni og (Forseti hringir.) hennar stjórnmálahreyfingu fyrir stuðninginn við sóttvarnaaðgerðirnar vegna þess að það sýnir að hægt er að nálgast hlutina á málefnalegum grunni.