151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:23]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera hér til svara um þessi málefni. Jú, sameinuð sigrum við þetta, sundruð lendum við í vandræðum. Mig langar að spyrja um eitt sem ég hef svolitlar áhyggjur af, því að þó að það séu ekki margir þá eru samt ákveðnir einstaklingar sem eru fastir heima hjá sér, hafa hvorki grímur né spritt. Ég hef spurt að þessu áður en nú hef ég eiginlega meiri áhyggjur vegna þess að nú hefur faraldurinn dregist á langinn og þessir einstaklingar komast hvorki út í strætó né neitt annað. Hvert geta þeir hringt, þó það væri ekki nema í hjálparsamtök eða eitthvað sem búið væri að skipuleggja, til að þeir gætu fengið grímur og jafnvel spritt sent heim til þess að eiga möguleika á að komast út í samfélagið og komast í verslanir, t.d. matvörubúð?

Síðan er það annað, en það er eiginlega verið að tala um þrjú bóluefni. Eitt af því held ég að sé frá AstraZeneca og það er talið virka 94%, sérstaklega fyrir 65 ára og eldri. En ég er að spá í hvernig þetta verður valið. Ef við tökum þessi bóluefni þá á að geyma eitt við 80°C frost, annað við 20°C frost. Höfum við aðstöðu hér til að geyma það á þennan hátt? Er búið að hugsa fyrir því? Ég sá að búið var að hugsa fyrir því í Brussel, með geymslu fyrir þetta. Hvernig fer þetta val fram?

Síðan í sambandi við aukaverkanir, er búið að kortleggja þær? Vitum við hverjar þær eru? Munum við velja það bóluefni sem er með minnstu aukaverkanirnar?