sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Fyrst um spurningu hv. þingmanns um það hvert fólk eigi að leita ef það hefur ekki aðgang að grímu eða einhverju slíku. Ég myndi halda að það ætti að leita til félagsþjónustu sveitarfélags viðkomandi. Verslunum er skylt að hafa aðgengilegt spritt í búðunum þegar maður kemur inn, hvort sem eru lyfjaverslanir eða matvöruverslanir. Hins vegar vil ég segja það almennt við hv. þingmann að undir kringumstæðum eins og þessum, þegar við erum í almannavarnaástandi eða í alvarlegu ástandi í samfélaginu, bitnar það alltaf harðast á jaðarsettum hópum. Það er bara þannig. Þess vegna megum við ekki missa sjónar á því að sinna þeim hópum og það höfum við verið að gera, bæði í samstarfi við sveitarfélögin, með sérstökum framlögum, til geðheilbrigðismála, til félagsþjónustu og til barna, til fátækra barna o.s.frv. Við höfum verið að reyna að halda augunum á þessum bolta.
Ég hef sett í gang tvo stýrihópa, annars vegar hóp sem er að horfa á áhrif á geðheilbrigði af Covid-19. Þá erum við að hluta til að tala um það sem þingmaðurinn er að nefna, sem er auðvitað einangrun og einmanaleiki o.s.frv., sem er enn þá meiri hætta á undir þessum kringumstæðum. Það eru líka spurningar sem lúta að lýðheilsu, það er annar hópur, og þar erum við að tala um svefn og ýmis neyslumunstur, mataræði, hreyfingu o.s.frv. Og við vitum að það að vera í jaðarsettum hópi bendir til þess að viðkomandi eigi mögulega í meiri vandræðum með alla þessa þætti og oftar en ekki vegna fátæktar. Það vitum við bæði.
Hv. þingmaður spyr um bóluefni og hvernig það verður valið. Við erum í raun og veru að skrifa undir samninga við marga aðila til þess að tryggja okkur eins vel og við getum. Það sem hv. þingmaður spyr um, geymsluaðstöðu, virkni og aukaverkanir, er enn þá allt til skoðunar (Forseti hringir.) og við getum ekki svarað því núna um miðjan nóvember, en vonandi koma svörin fyrr en síðar.