151. löggjafarþing — 23. fundur,  19. nóv. 2020.

sóttvarnaaðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:29]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Þessar spurningar hv. þingmanns endurspegla algerlega það sem er bara daglegt brauð bæði hjá sóttvarnalækni og mínu ráðuneyti. Það eru erindi og spurningar af þessu tagi því að fólk er að velta fyrir sér hvernig sé með þessa þjónustu og þessa fermetra o.s.frv. Það sem er í raun okkar vandi kannski fyrst og fremst er að gæta þess að reglurnar séu eins almennar og nokkurs er kostur en þó ekki þannig að þær séu óljósar og fólk átti sig ekki á því við hvern nákvæmlega þær eiga. Ég átta mig algerlega á því að þetta með tíu manna hámark í verslunum er flókið mál en um leið er þetta ákvörðun — við megum heldur aldrei gleyma því af hverju ákvörðunin er tekin. Hún snýst um að draga úr líkunum á smiti þannig að það er verkefnið.

Hv. þingmaður spyr um sundlaugarnar. Ég er mjög meðvituð um þetta. Það að vera í sundi snýst um það hjá stórum hópum í samfélaginu að viðhalda hreyfifærni og þess vegna er það alltaf á blaði hjá okkur að taka það inn eins fljótt og auðið er. En eins og hv. þingmaður veit (Forseti hringir.) þá verðum við að fara varlega.