flokkun lands í dreifbýli í skipulagi.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra fyrir að koma hér til sérstakrar umræðu um flokkun lands í skipulagi í dreifbýli. Það er nú orðið meira en ár síðan ég óskaði eftir þessari umræðu en hún hefur ekki komist á dagskrá fyrr vegna óvenjulegra aðstæðna í samfélaginu. Ég stend fyrir þessari umræðu af því að ég trúi að skipulag sé stjórntæki sem við getum notað betur og markvissara en við gerum í dag, m.a. til stefnumótunar um landnotkun og þróun samfélaga í dreifbýli. Ég trúi að í gegnum skipulagsvinnu sé mögulegt að stuðla að nýsköpun við hvers konar sjálfbæra landnýtingu og styrkingu búsetu í dreifbýli.
Fyrsta skref slíkrar vinnu væri að afmarka það landbúnaðarland sem varðveita ætti til matvælaframleiðslu, land sem ekki á að taka úr landbúnaðarnotum eða viðhalda í ástandi sem auðvelt væri að taka aftur til ræktunar. Eftir að búið væri að taka þetta land frá, landið sem við viljum eiga til matvælaframleiðslu, og jafnvel flokka í nokkra flokka yrði auðveldara að taka ákvarðanir um aðra landnotkun, svo sem frístundabyggð, skógrækt eða endurheimt votlendis.
Markmið mitt í þessari umræðu er að kalla fram ólík sjónarmið um tækifærin sem felast í flokkun lands í skipulagi og um leið að hvetja til þess að vinna að flokkun lands komist framar í forgangsröðina en hingað til. Land er auðlind og við verðum að tryggja að það sé nýtt skynsamlega.
Á síðasta þingi lagði ég fram tillögu að aðgerðaáætlun um umbætur í jarðamálum. Ein aðgerðin sem ég lagði til var að umhverfis- og auðlindaráðuneytið flýtti gerð leiðbeininga um flokkun landbúnaðarlands og mótaði leiðir til að skilgreina búsetuskyldu í dreifbýli í skipulagi. Í landsskipulagsstefnu 2015–2026, sem samþykkt var á Alþingi, er gert ráð fyrir að umhverfis- og auðlindaráðuneytið, í samstarfi við Skipulagsstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Landgræðsluna, Skógræktina og Bændasamtök Íslands, standi fyrir gerð leiðbeininga um flokkun landbúnaðarlands til nota við skipulagsgerð og aðra stefnumótun um landnýtingu. Hraða verður gerð þessara leiðbeininga til að sveitarfélögin geti unnið skipulagsáætlanir með samræmdu verklagi.
Ég spyr því: Hvernig miðar gerð leiðbeininga um flokkun landbúnaðarlands til nota við skipulagsgerð?
Mér til furðu birtust í febrúar sl. drög að reglugerð um vernd landbúnaðarlands í samráðsgátt og þá frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, að því er virtist án samráðs við umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Í september birtust svo drög að breytingum á jarðalögum í samráðsgátt sem ég get ekki séð annað en að stangist í veigamiklum atriðum á við önnur markmið stjórnvalda um að góðu ræktarlandi verði ekki ráðstafað óafturkræft til annarra nota.
Ég spyr því: Hvernig er samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið um þessa vinnu háttað? Það er sorglegt að sjá gott ræktarland bútað niður í sumarbústaðalóðir, jafnvel þar sem nóg er af öðru hentugra sumarbústaðalandi.
Stjórnvöld og almenningur hafa áhrif á landnýtingu í gegnum skipulagsáætlanir sveitarfélaga. Í skipulagsvinnu þarf að meta hvar hægt væri að gera ráð fyrir heilsársbúsetu og á grunni þess að setja markmið um atvinnusköpun og tekjuöflun til samfélaganna. Þannig gæti flokkun lands stuðlað að betri umgjörð jarðamála.
Þá hef ég þrjár spurningar í viðbót: Hvernig getur stefnumótun um flokkun landbúnaðarlands í skipulagi stutt við stefnumörkun stjórnvalda um landnýtingu og ráðstöfun lands og jarða? Telur ráðherra mögulegt að skipulagsáætlanir gætu orðið grunnur kröfu um búsetu-, rekstrar- eða nýtingarskyldu lands, jarða eða mannvirkja í dreifbýli? Hvaða áhrif hefði flokkun lands í skipulagi í dreifbýli varðandi nýtingu lands við bindingu kolefnis og endurheimt vistkerfa?
Það hefur verið margítrekað á Alþingi að það eigi að byggja skipulag í dreifbýli á flokkun landbúnaðarlands. Það hafa verið gerðar atlögur að verkefninu, starfshópar unnið og töluvert komið út af skýrslum um málið. Því leikur mér forvitni á að vita hver staðan raunverulega er. Nokkur sveitarfélög hafa flokkað landbúnaðarland án þess að nota sömu aðferðafræði við þá vinnu. Önnur eru í vandræðum við afgreiðslu umsókna um breytta landnotkun vegna skorts á forsendum til ákvarðanatöku.